137. löggjafarþing — 25. fundur,  26. júní 2009.

stöðugleikasáttmáli -- Icesave -- heilsutengd ferðaþjónusta -- raforkuverð til garðyrkjubænda.

[13:57]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Það er athyglisverð umræða sem hér hefur orðið um stöðugleikasáttmálann. Það er hægt að taka undir það með hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að aðilar vinnumarkaðarins hafa sýnt mikla ábyrgð með því að styðja við þennan sáttmála og gera það kleift að gera hann. Það hlýtur að vera stjórnarandstöðunni hér á þingi umhugsunarefni að einmitt þeir tímar sem við lifum nú kalla á slíka samstöðu, á slíkan vilja til þess að teygja sig á móti sjónarmiðum annarra aðila, á frumkvæði eins og það sem Samtök atvinnulífsins hafa sýnt með því að taka á sig umtalsverðar skattahækkanir með hækkun tryggingagjaldsins, sem hv. formaður Sjálfstæðisflokksins vísaði til áðan, 12 milljarða skattahækkun, til þess að sýna að sá leiðangur sem við eigum fyrir höndum er mikill og erfiður. Hann verður ekki farinn öðruvísi en að allir leggi þar á sig. Hann verður ekki farinn öðruvísi en lagðir verði á auknir skattar og dregið úr rekstri ríkisins (Gripið fram í.) vegna þess að það er ekki hægt að láta neitt svið undanskilið.

Það hlýtur að vera fólgin hvatning í þessu til stjórnarandstöðunnar að koma að þessu verki með málefnalegum hætti eins og hún hefur alla burði til og endurtaka þá miklu þjóðarsamstöðu sem hér tókst árið 1989 til þess rjúfa þann vítahring sem við höfum verið í, að leggja grunninn að endurreisn íslensks efnahagslífs, þeirri þjóðarsátt sem áður reyndist okkur svo farsæl til þess að vinna bug á miklum erfiðleikum. Hún gæti núna, ef menn sýna ábyrgð og festu og þora að taka þátt í erfiðum ákvörðunum með stjórnarflokkunum, skapað okkur sjálfum og börnum okkar bjartari efnahagslega framtíð en við getum nú bundið vonir við.