ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Ég vil bara ítreka það sem ég sagði áðan. Við erum ekki að deila um að það þurfi að taka á vandanum, við erum að segja að við viljum gera það með öðrum hætti. Við viljum sjá að ríkið leggi meira á sig, við viljum sjá ríkið draga meira úr umsvifum sínum.
Skoðum hvernig ríkið hefur verið að taka til sín vaxandi fjölda starfa á hverju ári. Skoðum hvernig við höfum misst samneysluna fram úr 2% viðmiðinu aftur og aftur. Skoðum það að einn fjórði allra fjárlagaliða á fjárlögum fer fram úr. Skoðum skýrslur Ríkisendurskoðunar sem ár eftir ár segir að það þurfi meiri aga og ábyrgð í rekstri ríkisins. Er eitthvað verið að taka á þessu? Eru einhverjar vísbendingar um að menn ætli að grípa til aðgerða til að taka á þessum hlutum af meiri hörku? Nei, það er fyrst og fremst verið að tala um að hækka skattana. (Forseti hringir.) Ég áskil mér allan rétt til að hafa skoðun á því hvaða skattar verða hækkaðir, hvað atvinnustarfsemin og fjölskyldurnar þola og hvernig það leggst ár fyrir ár.