ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Það er vissulega svo að það má mjólka kú svo að úr henni falli nytin og auðvitað er það eins með skattstofna að það má ganga svo langt fram að þeir hætti að gefa af sér.
Hér gerði hv. þingmaður að umtalsefni tryggingagjaldið. Það er vissulega þannig að það býður heim hættu á því að aukin gjaldtaka bitni á atvinnustiginu en ég bendi á að það voru Samtök atvinnulífsins sem bentu sérstaklega á þennan gjaldstofn sem hugnanlegastan aðildarfyrirtækjunum til að brúa það erfiða bil sem fram undan væri.
Eftir stendur hins vegar að við munum þurfa að taka mjög erfiðar ákvarðanir. Hér er auglýst eftir því að ríkisstjórnin sýni á spilin hvað varðar aðhald í rekstri. Það er vissulega þannig að á miðju ári er ekki hægt að breyta mörgum hlutum en það er alveg ljóst að á næsta ári er stefnt að 14 milljarða sparnaði í rekstri ríkisins og honum verður ekki náð nema með mjög sársaukafullum aðgerðum.
Hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson hefur auglýst eftir því að af hálfu ríkisins verði gengið hart fram í sparnaði en jafnframt að hann eigi ekki að bitna á velferðarkerfinu. Velferðarútgjöld til félags- og heilbrigðismála eru helmingur ríkisútgjalda. Þar við bætist síðan menntakerfið upp á 12%. Ég get ekki séð fyrir mér að niðurskurðartölum upp á 14 milljarða verði náð öðruvísi en það bitni á velferðarkerfinu.
Í því ráðuneyti sem ég ber ábyrgð á að stýra nú horfum við á að niðurskurður geti jafnvel bitnað á þjónustu við fatlaða. Það er engin töfralausn að veifa hér og hrópa eftir meiri niðurskurði í rekstri, menn verða líka að átta sig á að hann kann að verða sársaukafullur. Það sem þarf að gera er auðvitað að koma fram með heilbrigða blöndu af sköttum, samdrætti í rekstri og samdrætti í tilfærslum og reyna að gæta sanngirni sem kostur er. Það hefur verið reynt að gera af hálfu ríkisstjórnarinnar og ég auglýsi eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn gangi nú í takt með okkur og með aðilum vinnumarkaðarins þessa leið áfram.