ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Ég endurtek: Þeir gusa mest sem grynnst vaða. Við vorum ekki að tala um stöðugleikasáttmálann og erum ekki að því. Við erum að tala um það sem við höfum kosið að kalla bandorm, það er nákvæmlega það sem við erum að gera, alla vega hef ég ekki séð aðila vinnumarkaðarins í efnahags- og skattanefnd að semja hlutina eða skrifa þá upp. Ég held að það sé bara ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á þessu og það þýðir ekki að varpa af sér ábyrgð á þessum verkum yfir á aðila vinnumarkaðarins eins og hv. þingmaður gerir hér. Þú verður bara að kannast við að það er ríkisstjórnin sem gerir þetta, en nóg um það. Ég ætla að fara í smásöguskoðun.
1. Lífeyrissjóðakerfið eins og það er núna er tillaga frá sjálfstæðisþingmanninum Ólafi Björnssyni. Við vissum um vandamálin sem voru hér fyrir hendi. Sjálfstæðisflokkurinn hannaði þetta kerfi og setti það á fót með aðilum vinnumarkaðarins fyrir í kringum þrem áratugum síðan.
2. Hv. þingmaður talar um að velferðarkerfið sé búið til af einhverjum öðrum en Sjálfstæðisflokknum. Síðan er talað um að Sjálfstæðisflokkurinn beri ábyrgð á öllu. Við berum ábyrgð á 79% raunaukningu til velferðarkerfisins á undanförnum árum, hv. þingmaður. (GuðbH: Það er mikið af þessu á síðustu tveimur árum.) Á síðustu tveim árum? Síðan þið komuð hefur því miður þurft að skerða. En ég frábið mér að ég sé að tala um stöðugleikasáttmálann í ræðustól. Ég er að tala um ábyrgð ríkisstjórnarinnar á því frumvarpi sem hér er til umræðu.