137. löggjafarþing — 26. fundur,  26. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[17:36]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Frú forseti. Það var áhugavert að hlusta á orðaskipti hv. þingmanna. Ef ég má veita hv. þm. Guðbjarti Hannessyni ráð er það það að hann er maður til að standa fyrir sínum eigin málflutningi. Ég hef unnið með honum frá því að hann kom á þing í fjárlaganefndinni og hv. þingmaður þarf ekki að taka það sem svo í hvert skipti sem menn eiga við hann orðastað og eru ekki honum sammála að þar með hafi þeir ráðist á bæði Gylfa Arnbjörnsson og Vilhjálm Egilsson. Þingmaðurinn, þótt stór sé, inniheldur ekki þessa tvo menn auk sjálfs sín. Ég hef reyndar tekið eftir því í umræðum í þingsal í dag að menn hafa litið svo á að með stöðugleikasamkomulaginu sé komin upp einhver furðuleg staða, þ.e. ef menn hafa athugasemdir við gjörðir ríkisstjórnarinnar tali þeir um leið af virðingarleysi til þeirra sem stóðu að sáttinni. Ég vara mjög við þessu og ég verð reyndar að segja eins og er að mér finnst þetta bera nokkurn vott um óöryggi um hvernig menn halda á málum.

Stöðugleikasáttmálinn er mjög mikilvægur og hann er vonandi skref fyrir okkur áfram. Á miklu veldur hvernig menn standa síðan að málum sérstaklega hjá ríkisvaldinu, sérstaklega um hvernig við tökum á ríkisfjármálunum. Ég vil því byrja á því að segja að menn mega ekki líta svo á að hérna hafi orðið til einhvers konar skjöldur sem gerir það að verkum að hvergi sé hægt að koma við gagnrýni á ríkisstjórnina án þess að verið sé að vega að þeim annars ágætu mönnum, Gylfa Arnbjörnssyni og Vilhjálmi Egilssyni.

En þá að því máli sem hér er fyrir framan okkur. Einnig hefur verið nokkuð rætt í dag hver þróun ríkisútgjalda hefur verið til einstakra málaflokka, hvar menn hafa haft áherslurnar í ríkisfjármálum undanfarin ár. Ég er í hópi þeirra þingmanna, og var reyndar þeirrar skoðunar áður en ég kom inn á hið háa Alþingi, að útgjaldastigið, útgjöld ríkissjóðs, hefði vaxið allt of hratt og of mikið. Í þeirri umræðu kom gjarnan upp hugtakið „aðhaldsstig ríkisfjármála“ sem ég tel að hafi verið blekkjandi hugtak, að það hafi ekki horft nægilega til þess að hluti þeirra tekna sem ríkissjóði áskotnuðust var annars vegar vegna starfsemi íslenskra fyrirtækja á erlendri grundu og hins vegar vegna þess mikla viðskiptahalla sem myndast hafði. Ég tel að það hafi villt mönnum nokkuð sýn þegar horft var til þess afgangs sem var af fjárlögum, sem var vissulega mjög mikill. Ég verð að játa að ég fór ekki að hugsa eftir þessum línum fyrr en komið var inn á árið 2007/2008 þegar það rann almennilega upp fyrir mér að það hversu mikill afgangur er á ríkisfjármálunum væri ekki merki um heilbrigði. Segja má að framkvæmdarvaldið og hið opinbera allt hafi á sínum tíma nálgast fjármál ríkisins og sveitarfélaganna þannig að verðbólga væri vandamál sem Seðlabankinn ætti að leysa af því að við höfum breytt lögum um Seðlabanka Íslands, sett honum verðbólgumarkmið. Það var eins og komin væri sú sameiginlega hugsun að menn gætu aukið ríkisútgjöldin allt að því eins og mönnum þóknaðist. Hér hafa verið nefndar tölur um hversu mikil útgjaldaaukning hafi orðið til t.d. velferðarmála á undanförnum 10–15 árum, 79%, sem er auðvitað alveg gríðarlega há tala. Vissulega er það rétt sem kom fram hjá hv. þm. Guðbjarti Hannessyni að hluti af því var aukning sem varð frá þeim tíma sem Samfylkingin kom í ríkisstjórn. Það er alveg sjálfsagt að halda því til haga sem vel er gert en stundum finnst mér eins og ýmsir hv. þingmenn, ég tek þó fram að það eru ekki allir, virðist stundum hafa gleymt því í umræðunni í þessum sal að sá ágæti flokkur Samfylkingin var í ríkisstjórn frá vordögum 2007 og fram í febrúar á þessu ári. Menn geta ekki bæði eignað sér heiðurinn af því sem reynt var að gera vel og látið eins og þeir hafi hvergi komið nærri stjórn landsins sl. tvö ár.

Ég hef líka margoft lýst þeirri skoðun minni að sú peningamálastefna sem Seðlabankinn rak við þær aðstæður sem eru uppi í íslensku efnahagslífi hafi verið röng. Það má lýsa henni þannig að bankinn hafi reynt að láta íslenskt þjóðarbú taka lán erlendis til að halda niðri verðbólgu. Það má ljóst vera að slík aðferðafræði, þótt hér sé hún sett upp í einfölduðu máli, og slík nálgun getur auðvitað aldrei gengið upp, enda sjáum við þess stað í efnahagslífi okkar þau vandamál sem við sitjum uppi með vegna hinna svokölluðu jöklabréfa sem gera allt endurreisnarstarf erfiðra. En það er ekki þannig að hér hafi árum saman verið ríkisstjórn við völd, hvort sem var undir forustu Sjálfstæðisflokksins í samstarfi við Samfylkinguna eða Sjálfstæðisflokkur í samstarfi við Framsóknarflokkinn, og að ýmis velferðarmál, menntamál, heilbrigðismál og aðrir slíkir málaflokkar hafi verið sveltir. Þvert á móti var gríðarleg aukning til þessara málaflokka á sl. einum og hálfum áratug samanlögð útgjöld ríkisins og sveitarfélaganna. Peningamálastefna Seðlabankans, sú staðreynd að stór hluti íslenskra lána eru verðtryggð og auðveldur aðgangur að erlendu lánsfé gerðu það að verkum að við misstum tök á hagstjórninni. Þá er ég ekki einungis að horfa á bankana sérstaklega heldur á það verkefni sem við erum fyrst og fremst með hér og í Seðlabankanum.

Ég hef líka orðið var við það sjónarmið í þessari umræðu sem ég skil vel hvar á rætur sínar að rekja, að menn leggi nokkuð að jöfnu þau störf sem unnin eru í opinbera geiranum og hins vegar á almennum markaði. Vissulega þarf ekki að deila um að verðmæti eru fólgin í þeim störfum sem unnin eru af hálfu hins opinbera. Í menntuninni sem hið opinbera hefur kosið að reka eru fólgin alveg gríðarleg verðmæti. Í heilbrigðisþjónustunni eru fólgin alveg gríðarleg verðmæti. Það er augljóst mál fyrir hvern einstakling, fyrir utan persónulega líðan og lífshamingju, eru það heilmikil hagræn rök að sem flestir þurfi að dvelja sem styst á spítölum eða fjarri vinnu. Því öflugra heilbrigðiskerfi sem við höfum því betur getum við lifað lífi okkar og þar með tekið þátt í efnahagslífinu og skapað verðmæti. Allt þetta er alveg augljóst mál. En, og það á að vera alveg jafnaugljóst, að til að geta veitt þessa þjónustu eins og við viljum gera þarf þar að baki að eiga sér stað verðmætasköpun. Það má vera deginum ljósara vegna þess að ef það væri einhvern veginn öðruvísi væri aldrei vandamál með atvinnuleysið. Þá mundum við bara fjölga opinberum störfum. Allir þeir sem mundu missa vinnuna á almennum markaði fengju þá bara starf hjá hinu opinbera. Af hverju er það ekki hægt, frú forseti? Af hverju skyldi það ekki vera hægt? Vegna þeirrar staðreyndar sem ég nefndi áður, að bak við þessi störf verður að vera verðmætasköpun. Þetta er mikilvæg og verðmæt þjónusta en fyrir hana þarf að greiða. Þess vegna er það að mínu mati ámælisvert hvernig ríkisstjórnin hefur staðið að málum þegar kemur að atvinnulífinu og verðmætasköpuninni.

Til dæmis er það vandamál að í verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar er enn þá það fyrirheit eða öllu heldur sú hótun að afskrifa aflaheimildir sjávarútvegsfyrirtækjanna um 5% á ári. Ég verð að segja eins og er að ég er mjög ánægður með að Samtök atvinnulífsins hafa komið vitinu fyrir ríkisstjórnina að nokkru í stöðugleikasáttmálanum með því að setja það mál inn í ákveðinn farveg. En það breytir ekki þeirri staðreynd að áfram vomir þetta yfir. Þessar áætlanir eru enn þá á blaði. Þær hafa ekki verið afnumdar. Má hverjum manni vera það ljóst hvaða áhrif það hefði fyrir íslenskt efnahagslíf ef sjávarútveginum, aflvélinni í hagkerfinu okkar, yrði stefnt í uppnám. (TÞH: Sem hefur verið gert.) Jafnsérstakar reyndar tel ég vera hugmyndir um frjálsar strandveiðar svokallaðar sem gera ekkert annað en sóa verðmætum og búa til möguleika fyrir þá sem hafa selt sig út úr þeim kerfum sem nú eru við lýði að komast aftur inn í kerfin og selja sig svo aftur út þegar hið óumflýjanlega gerist að loka þarf aftur fyrir aðganginn.

Þetta eru tvö dæmi sem ég tek úr sjávarútveginum þar sem ég tel að ríkisstjórninni hafi verið mislagðar hendur og nú vil ég taka það fram við hv. þingmenn að með þessu er ég ekki að veitast að aðilum vinnumarkaðarins, að stöðugleikasáttmálanum eða neinu slíku heldur er ég frekar að hrósa þeim fyrir það sem þar var gert.

Það sem við sjálfstæðismenn höfum verið að vara við í þessari umræðu og almennt á undanförnum vikum þar sem rætt hefur verið um það hvernig taka eigi á þessum mikla efnahagsvanda er að við höfum varað við því að nálgast þetta þannig með þá hugsun að leiðarljósi að hægt sé að skattleggja sig út úr þessum vanda. Það er alveg rétt að það eru erfiðir valkostir sem þarf að velja á milli og það er aldrei svo að það verði einhver ein leið sem geti létt af okkur öllum þeim þunga sem á okkur hvílir. En vandinn við skattlagningarleiðina er sá að hún er tvíeggjuð þegar kemur að rekstrarniðurstöðu ríkissjóðs. Ég vil benda, frú forseti, sérstaklega á nefndarálit minni hlutans sem hér er lagt fram og ég tel mjög vandað og greinargott yfirlit yfir afleiðingar þessara aðgerða. Á blaðsíðu 2 í nefndarálitinu eru sérstaklega rakin áhrif þessara aðgerða á efnahagslífið og hvernig þær aðgerðir síðan koma við ríkissjóð og heimilin í landinu. Ég skora á hv. þingmenn stjórnarinnar og stjórnarliða að kynna sérstaklega þessa útreikninga og ef þeir hafa athugasemdir fram að færa við þær niðurstöður sem þar eru settar fram væri það mjög til bóta fyrir umræðuna að heyra þær. En hér er verið að benda á að þau skipta milljörðum og tugum milljarða þau áhrif sem þessar aðgerðir hafa á þjóðarframleiðsluna.

Hvers vegna skyldi þetta vera svona? Það er vegna þess að skattahækkanir, hvort sem um er að ræða á atvinnurekstur eða einstaklinga, verða þess valdandi að það dregur úr eftirspurn í hagkerfinu. Þetta er ekki einhver svona uppdiktuð fræðikenning úr skraufþurrum bókum hagfræðinga. Þetta er bara almenn skynsemi sem hver og einn maður getur reynt á sjálfum sér því þegar ríkisvaldið tekur fleiri krónur af laununum þá eru færri krónur eftir þegar menn hafa borgað af lánunum ef þeir geta til að kaupa vöru og þjónustu, til að kaupa föt og mat og allt það sem þarf til að geta lifað eðlilegu lífi. Eftir því sem færri krónur eru eftir til þess því minni eftirspurn er í hagkerfinu og eftir því sem eftirspurnin minnkar í hagkerfinu þá fækkar störfunum. Stundum þegar við sjálfstæðismenn erum að fara yfir þessa röksemdafærslu þá er látið eins og þetta séu einhverjar abstrakt fræðikenningar sem séu þess eðlis að á erfiðum tímum hafi menn enga tíma fyrir slíkt tal, nú þurfi að grípa til skattahækkana.

Stundum er talað þannig að menn verða að vera tilbúnir til að taka erfiðar ákvarðanir, að gríðarlega mikilvægt sé að menn taki erfiðar ákvarðanir. Ég er þeirrar skoðunar, frú forseti, að það sé miklu mikilvægara að taka réttar ákvarðanir. Það kann að vera að réttar ákvarðanir séu erfiðar. En ég held að okkur þingmönnum væri hollt að horfa fyrst og síðast til þess að taka réttar ákvarðanir. Vandinn við það sem birtist annars vegar í þessu frumvarpi og hins vegar í stöðugleikasáttmálanum sem skrifað var undir er að okkur sjálfstæðismönnum þykir of mikil áhersla lögð á skattahækkanir vegna þess að við erum sammála um það, held ég, hvar í flokki sem við stöndum að við viljum verja velferðarkerfið í landinu. Við viljum halda uppi öflugu menntakerfi. Við viljum hafa öfluga heilbrigðisþjónustu. Við viljum hjálpa þeim sem þurfa á hjálp að halda. En til að geta gert þetta verður hagkerfið að skapa verðmæti. Það verður ekki gert öðruvísi. Það er óskhyggja að halda annað. Og ef of langt er gengið í skattahækkunum, ef um of er dregið úr möguleikum fyrirtækjanna til að skapa verðmæti þá gerist bara það eitt síðar meir — einu ári seinna eða tveimur eða hvað það nú er — að vandinn í ríkisfjármálunum verður miklu meiri og þörfin á niðurskurði verður enn þá meiri en ella hefði orðið. Það er því ekki eins og látið er að liggja að við sjálfstæðismenn séum með svo kalt blóð í æðum að við segjum sem svo að við viljum engar skattahækkanir, við viljum að allt þetta verði tekið með niðurskurði af því að okkur standi einhvern veginn á sama um velferðarkerfið og menntakerfið og alla þessa liði. Það er svo langt í frá. Það er einmitt öfugt vegna þess að við vitum það — og hv. þingmönnum á að vera það fullkomlega ljóst — að ef skattstofnarnir styrkjast ekki, ef efnahagslífið tekur ekki við sér þá mun það eitt gerast að vandi ríkissjóðs mun vaxa og þá verður erfiðara og erfiðara að ná jafnvægi.

Frú forseti. Það eru auðvitað fjölmörg mál sem ég hefði áhuga á að koma að í þessari umræðu. Ég tel að í nefndaráliti minni hlutans hafi verið farið mjög ítarlega yfir einstakar greinar og athugasemdir minni hlutans við einstakar greinar og heildaráhrif þessa lagafrumvarps. Ég vil því nota tækifærið og þakka fyrir þetta álit sem ég tel að sé mjög til hjálpar og aðstoðar við að skilja þetta mál.

Ég vil þó að lokum nefna eitt sem snýr að lífeyrissjóðunum og segja að það er ekki rétt og það er ekki hægt að rökstyðja þá skoðun að með því að skoða þá leið sem við sjálfstæðismenn höfum reifað varðandi breytingar á skattlagningu lífeyrissjóðanna sé þar með verið að velta vandanum inn í framtíðina, að menn séu ekki að takast á við þann vanda sem uppi er, að það sé verið að auka byrðarnar á framtíðina. Svo er ekki. Vissulega gerist það að það dregur úr þjóðhagslegum sparnaði. Það má ljóst vera. En á móti verða menn að vega að um leið er verið að draga annars vegar úr skattlagningarþörf ríkisins, þeirri skattlagningarþörf sem hefur þau áhrif sem ég lýsti fyrr í ræðu minni á eftirspurnina í samfélaginu og er þess vegna hættuleg við þessar aðstæður þar sem eftirspurnin er að dragast saman á hverjum einasta degi og einnig lánsfjárþörf ríkisins eins og hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson benti á því að það eru einmitt lífeyrissjóðirnir sem eru að kaupa bréf ríkisins og þar með fjármagna ríkið. Menn verða því að horfa á þetta heildstætt til að geta lagt mat á hvaða áhrif slík aðgerð hefði. Menn verða sem sagt að horfa til þess að skattahækkanir, jafnmiklar og lagðar eru til hér næstu árin, munu hafa áhrif á eftirspurnina, draga úr framleiðslugetunni, draga úr viljanum til að fara af stað með ný fyrirtæki, alla þessa þætti og að ríkið stendur frammi fyrir þessum gríðarlega vanda við að fjármagna sig að viðbættu síðan því sem rætt hefur verið og farið yfir margsinnis hvaða áhrif þetta hefur á lífeyrisgreiðslur til hvers og eins einstaklings þar sem bent hefur verið á undarlegar og allt að því óskiljanlegar rökvillur hjá ýmsum þeim sem hafa komið fram og gagnrýnt þær hugmyndir sem við sjálfstæðismenn höfum haft í þessu máli og er of langt mál hér að fara í til að það dugi á þeim sekúndum sem ég á eftir.

Að lokum, frú forseti. Við sjálfstæðismenn erum okkur mjög þess meðvituð að það er ekki auðvelt mál fyrir ríkisstjórnina að koma fram með þetta. Þetta er ekki óskastaða nokkurs stjórnmálaflokks eða nokkurrar ríkisstjórnar að þurfa að standa í. Við höfum skilning á því. Við höfum margítrekað að við viljum vinna með ríkisstjórninni í þessum málum. Við höfum lagt fram okkar eigin efnahagstillögur og kynnt þær. En við teljum það líka skyldu okkar jafnframt (Forseti hringir.) að gagnrýna það sem við teljum að megi betur fara rétt eins og við leggjum fram tillögur um það sem við teljum að geti horft til framfara.