137. löggjafarþing — 26. fundur,  26. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[18:17]
Horfa

Valgeir Skagfjörð (Bhr):

Frú forseti. Ég þakka fyrir góðar umræður í dag. Ég skrifaði undir minnihlutaálit í efnahags- og skattanefnd með fyrirvara og skilst að með því hafi ég brotið blað í sögu Alþingis, slíkt hefur víst aldrei verið gert. Til að geta tekið upplýsta ákvörðun um það sem fram fer þarf ég að fá nauðsynlegar upplýsingar til að ganga út frá og þar sem ég kem inn með stuttum fyrirvara sem varaþingmaður þá er ég kannski síður inni í sumum málum sem hafa komið fyrir nefndina og verið rædd þar og treysti mér þar af leiðandi ekki samvisku minnar vegna til að taka upplýsta ákvörðun í því ljósi. Því braut ég þetta blað og skrifaði undir minnihlutaálitið með fyrirvara.

Frú forseti. Frumvarpið sem er til umræðu gengur út á nauðsyn þess að auka tekjur ríkissjóðs. Ég geri mér grein fyrir því að vissulega kallar það á sársaukafullar aðgerðir, sem munu hafa afleiðingar fyrir mjög marga í þessu samfélagi. Í sjálfu sér er margt allrar athygli vert í frumvarpinu og ýmislegt sem hægt er að styðja við en því miður eru agnúar á frumvarpinu sem skipta verulegu máli fyrir ákveðna hópa í þessu landi. Samkvæmt 14. og 15. gr. er gert ráð fyrir því að ellilífeyrisþegar og öryrkjar taki á sig miklar skerðingar og eru þær þess eðlis að til skammar er fyrir ríkisstjórnarflokkana sem kenna sig við norrænt velferðarsamfélag og höfðu í kosningabaráttunni í vor uppi stór slagorð um að verja velferðina.

Frú forseti. Samvisku minnar vegna og þess að ég er þingmaður Borgarahreyfingarinnar mun ég aldrei taka þátt í því að veitast að lífsafkomu á milli 30 og 40 þúsund einstaklinga sem nú um stundir og undanfarin ár hafa reynt að draga fram lífið nánast við fátæktarmörk og eiga nú að herða sultarólarnar enn frekar og eiga þess ekki kost að lifa mannsæmandi lífi á þeim kjörum sem þeim munu bjóðast verði þetta að veruleika. Það er lítil reisn yfir þessum þætti frumvarpsins og lítil reisn yfir ríkisstjórn sem ætlar sér að seilast í hálftóma vasa þeirra sem standa frammi fyrir því hvort þeir eiga fyrir mjólk eða öðrum nauðsynjum á morgun, sem, nota bene, hækka bara. Til viðbótar skerðingunni munu aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa áhrif á vísitöluna því hækkunum er auðvitað velt út í verðlagið, en þær eru nú þegar orðnar ansi miklar vegna veikrar stöðu krónunnar og almennt þess efnahagsástands sem hér ríkir.

Sú fjárhæð sem fæst með þessari aðgerð einni og sér hleypur ekki á mörgum milljörðum. Það væri svo auðveldlega hægt að ná í þessa milljarða einhvers staðar annars staðar og ég tek undir orð hv. þm. Þuríðar Backman sem lýsti eftir því að allir, hvar í flokki sem þeir standa, fari á smásmugulegan hátt í gegnum hugmyndabanka sína til að leita að þessum fjármunum einhvers staðar annars staðar og víða eru til holur í þessu kerfi. Það að sparnaður hins opinbera eigi bara að standa undir 8% af þessari bættu afkomu en skerðing bóta um 14% er algerlega óásættanlegt frá mínum bæjardyrum séð.

Varðandi hátekjuskattinn velti ég því fyrir mér hvort ekki er hægt að leysa þetta með því að hafa þetta mjög einfalt, þ.e. að einstaklingar með 700 þús. á mánuði greiði tekjuskatt og fari tekjurnar yfir 1.400 þús. samanlagt hjá hjónum verði greiddur hátekjuskattur. Ég held að ekki þurfi að vera flókið að framkvæma þetta. Ég mun ekki styðja það að ráðast að öryrkjum og ellilífeyrisþegum að svo komnu.