137. löggjafarþing — 26. fundur,  26. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[19:15]
Horfa

Þráinn Bertelsson (Bhr):

Frú forseti. „Sjáið þið ekki veisluna, drengir?“ sagði einn ágætur þingmaður ekki alls fyrir löngu. Þar sem þessi góði þingmaður sá veislu sáu aðrir vitleysisgang, bruðl, svínarí og heimsku. Þessi veisla stendur enn þá. Það er alveg greinilegt. Hér þarf ekki að leita lengra heldur en fara niður á höfn til að sjá veisluna. Þar stendur steinkumbaldi sem nú stendur til að klæða með glerhjúp sem sérstakir Kínverjar með sérþekkingu á glerhjúpum munu koma utan um þennan steinkassa. Tónlistarhús er þetta kallað. Þetta er mesti óleikur sem tónlistarlífi á Íslandi hefur nokkru sinni verið gerður.

Það er greinilegt að þessi veisla eða vitleysa stendur enn þá og er í fullu fjöri. Fyrir þinginu liggur núna frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem er að öllu leyti furðulegt og gersamlega veruleikafirrt frumvarp sem lítur út eins og plástur sem maður setur á skeinu hjá barni. Það hefur góð áhrif á börn ef þau hrufla sig eða ímynda sér að þau hafi meitt sig. Þá koma þau gjarnan inn og biðja um plástur á meiddið. Venjulegur heftiplástur dugar afskaplega vel. Honum er smellt á viðkomandi og barnið brosir út að eyrum og hefur gleymt meiddinu. Það sem hér er um að ræða er ekki meiddi á litlum fæti. Það sem hér er um að ræða er opið beinbrot á þjóðarlíkamanum og þessar ráðstafanir í ríkisfjármálum bera þess engin merki að nokkur maður hafi hugsað til þess hversu alvarlegt þetta beinbrot er. Þessar ráðstafanir eru plástur en ekki verðugur umbúnaður um það sár sem óvarleg veislugleðin olli á líkama þjóðarinnar.

Ég ætla ekki að fjölyrða um þennan bandorm í smáatriðum. Það hefur sjálfsagt nóg verið talað það sem af er þessum degi. En ég get ekki við bundist að minnast á hversu heimskulegt, óréttlátt og ljótt það er að ætla að fela í þessum ómerkilega plástri þá ráðstöfun að skera niður þær naumu tekjur sem ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegar hafa. Það er með ólíkindum að ævinlega skuli vegið í sama knérunn. Það er sama hvaða ríkisstjórn situr að völdum hérna og meira að segja núna þegar við erum komin með norræna velferðarstjórn þá verður fyrst fyrir þegar leitað er að hinum breiðu bökum, þ.e. þá verður þeim fyrst fyrir að leita uppi öryrkja og ellilífeyrisþega og skerða kjör þeirra. Um er að ræða um það bil eða ríflega 30 þúsund einstaklinga og í þeim hópi eru fjölmargir þeirra sem kallaðir eru lítilmagnar eða þeir sem minnst mega sín í þjóðfélagi okkar. Ég segi: Það er óhæfuverk að ráðast að þessu fólki með niðurskurði til að ná saman 1,8 milljörðum. Það sem eftir er af þessu ári á að særa og ganga að 30 þúsund manns. Það er greinilega engu til sparað. Auðveldara hefði verið að taka þennan sparnað einhvers staðar annars staðar svo sem eins og hv. þm. Ásbjörn Óttarsson kom að, með því að fara að huga að glerhjúpnum sem Kínverjarnir eru núna að bræða utan á hið svokallaða tónlistarhús við höfnina.

Það er óhæfuverk að vega alltaf í þennan knérunn. Það er ekkert annað en óhæfuverk. Það er líka heimska. Það er svona svipuð heimska og hjá manninum sem lá á fjórum fótum undir ljósastaur og sagðist vera að leita að lyklunum sínum. Aðspurður sagðist hann að vísu hafa týnt lyklunum á allt öðrum stað en ljósið væri það gott þarna undir staurnum að hann hefði ákveðið að leita þarna. Því miður virðist ljós niðurskurðarins ævinlega beinast að þessum hópi í þjóðfélagi okkar, gömlu fólki og öryrkjum sem hefur ekkert af sér gert annað en að leggja sitt af mörkum til þessa þjóðfélags sem við höfum byggt upp hérna og á góðum stundum montað okkur af velsæld þessa þjóðfélags og á hversu öflugan hátt það hefur verið byggt upp. En við hegnum þeim sem byggðu þjóðfélagið upp, gamla fólkinu, fyrst af öllum ef á bjátar hjá okkur sjálfum með því að ráðast á nauman ellilífeyri þess.

Ég ætla ekki að setja á langar tölur um þennan bandorm aðrar en að mig langar til að það komi skýrt fram að hann olli mér miklum vonbrigðum. Ég hélt að hann væri komin frá róttækri ríkisstjórn, djarfhuga ríkisstjórn sem vildi vega að rótum þess vanda sem steðjar núna að íslenskri þjóð. En þessi bandormur er ekkert annað en plástur á einhverja ímyndaða skrámu á þjóðarlíkamanum frá ríkisstjórn sem ekki gerir sér grein fyrir því að hérna er ekki um neitt smáræðis meiddi að ræða heldur er um að ræða opið beinbrot sem við ættum að snúa okkur að því að veita verðugan umbúnað.