137. löggjafarþing — 27. fundur,  26. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[21:32]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég geri mér fulla grein fyrir því að menn þurfa að flýta sér mikið en nú þykir mér eiginlega kasta tólfunum í þessu. Það var ákveðið rétt áðan á örstuttum fundi í efnahags- og skattanefnd að gera verulegar breytingar á neyslusköttunum, þ.e. neyslustýringunni, og taka upp kerfi sem menn töldu áður ekki vera fært og nú erum við sem sagt að greiða atkvæði um að mér telst til 446 tollvöruflokka í staðinn fyrir 226. Ég veit að það er ekkert sérstaklega vingjarnlegt eða þannig en mig langar til að spyrja hv. formann nefndarinnar um það hvað felist í tollflokki 0909.1001. Ég veit að hann veit ekki svarið frekar en aðrir, ég geri ekki ráð fyrir að nokkur einasti þingmaður viti svarið, hvað er í þessum tollflokki en vara í honum skal bera 160 kr. á kíló. Svo er þarna flokkur sem ég bara trúi varla að eigi að vera 800 kr. á kíló, ég veit ekki hvað það gæti verið. Þetta sýnir hraðann á þessu sem mér finnst vera allt að því vansæmandi.

Svo ræðum við hér breytingar á Ábyrgðasjóði launa. Þar var ákveðið að borga vexti en þó ekki af iðgjöldum lífeyrissjóða vegna þess að þeir geti náð í sín iðgjöld, sem þýðir að þeir þurfa að sýna alveg sérstaka hörku núna til að ná í iðgjöldin, sýna sérstaka hörku í þeirri stöðu þegar fyrirtæki mega ekki við neinu og allir eru að tala um að bíða með innheimtuaðgerðir. Ef þeir gera það ekki þarf sjóðfélaginn að sæta skerðingu réttinda. Lífeyrissjóðurinn getur ekki tekið á móti iðgjöldum frá einum sjóðfélaga með vöxtum og frá öðrum án vaxta og veitt þeim sömu réttindi.