137. löggjafarþing — 27. fundur,  26. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[21:35]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og skattn. (Helgi Hjörvar) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal fyrir andsvarið. Það má taka undir það að auðvitað er ekki annmarkalaust að draga úr útgjöldum Ábyrgðasjóðs launa og alveg ljóst að það hlýtur einhvers staðar að koma niður. Það er niðurstaða nefndarinnar að það skuli koma niður á þessum tveimur stöðum enda hlífi það mest og best stöðu launamannanna sjálfra að standa þannig að verki.

Á vörugjaldakerfinu er það, eins og fram kom í máli mínu áðan, alkunnur annmarki sem hv. þingmaður þekkir vel af langri reynslu sinni sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis að það kerfi er auðvitað býsna flókið og því fylgir talsvert skrifræði. Eins og ég nefndi í ræðu minni var ráðist í það þegar hér lék allt í lyndi og við töldum okkur hafa efni á því, Íslendingar og alþingismenn, að ráðast í ýmiss konar aðgerðir, að afnema þetta kerfi að verulegu leyti fyrir innan við tveimur árum. Síðan hefur sagan leitt í ljós að við höfum einfaldlega ekki efni á ýmsum þeim aðgerðum sem við gripum þá til og það þarf að vinda ofan af þeim. Og þau tollskrárnúmer sem hv. þingmaður vísar hér til eru einfaldlega þau tollskrárnúmer sem þá voru notuð og þá voru í gildi og við höfum áralanga reynslu af því á Alþingi og Íslendingar að hafa þessa skipan á. Hér er í sjálfu sér fyrst og fremst um endurupptöku að ræða á þeirri skipan þó að ég verði auðvitað að gangast við því, eins og hv. þingmaður vissi, að ég verð að áskilja mér tíma til þess að fletta upp þeim flokkum sem hann tiltók hér sérstaklega og get ekki upplýst hann um þau atriði í stuttu andsvari.