137. löggjafarþing — 27. fundur,  26. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[21:37]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef átt mér þann draum í fjölda ára að einfalda þetta vörugjaldskerfi allt saman og í sannleika sagt bað ég einu sinni um kynningu á því og þá vissi ég eiginlega minna um það eftir að kynningunni lauk en áður. Það var það flókið eða lítil þekking á því.

Hér virðist mér gerast eftirfarandi: Það er einhver starfsmaður einhvers staðar, væntanlega í ráðuneytinu eða jafnvel hjá tollstjóra, sem sest niður og ákveður að það eigi að vera 160 kr. skattur á einhvern ákveðinn vöruflokk sem hann einn veit hver er. Síðan fer þetta upp í ráðuneyti, þessu er skutlað saman þar og þetta fer til nefndar, nefndin afgreiðir þetta og það veit enginn í rauninni hvað er í þessum flokki. Við erum að ákveða hér skatta á eitthvað sem við vitum ekki hvað er. Þetta eru sem sagt 446 flokkar sem við eigum að setja vörugjald á, yfirleitt 16 kr., hundraðkall hér, á kíló, stundum á lítra o.s.frv.

Mér finnst þetta dálítið hættulegt að það séu einhverjir embættismenn í kerfinu sem ákveða skattlagningu þó að Alþingi hafi skattlagningarvaldið. Ég held að menn þurfi að hugsa dálítið um þetta þegar svona er ákveðið, að leggja á skatt allt í einu, í staðinn fyrir að hækka virðisaukaskattinn úr 7% í 24,5% á 226 vöruflokkum eru hækkuð vörugjöld, krónutölugjöld á lítra og kíló á 446 flokkum. Það var tekin ákvörðun um þetta á u.þ.b. 15 mínútum ef það hefur náð því einu sinni. Þar með er það afgreitt og borgarinn skal fara að borga skatta, vörugjöld í gegnum vöruverð í verslunum og annars staðar. Ég held að við þurfum að hugsa dálítið um þetta.