útlánareglur nýju ríkisbankanna.
Frú forseti. Mín sýn er sú að það er ekki nákvæmlega ljóst hvernig eignarhald bankanna verður fljótlega upp úr 17. júlí, sem er fyrirsjáanlega ákveðinn merkisdagur í sögu íslenska bankakerfisins. Það getur verið að þá verði einhver banki eða jafnvel tveir að hluta, hugsanlega jafnvel að öllu leyti, komnir í eigu útlendinga en það er alls ekki fast í hendi. Það er einn af möguleikunum enn þá í stöðunni en því fer fjarri að það sé frágengið. Ef það gengur ekki eftir getur verið að erlendir kröfuhafar eignist kauprétt á einhverjum hluta hlutafjár í bönkunum sem þeir gætu þá nýtt sér síðar.
Ég vil ekki spá því nákvæmlega hvernig eignarhaldið verður í haust, en fyrirsjáanlega hljótum við að stefna að því að þessir bankar komist að verulegu leyti úr eigu ríkisins fyrr en síðar.