137. löggjafarþing — 29. fundur,  29. júní 2009.

Lánasjóður íslenskra námsmanna.

82. mál
[18:27]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F):

Frú forseti. Ég vil lýsa yfir mikilli ánægju með að þetta mál skuli komið til 2. umr. á vettvangi Alþingis og þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir hennar ágætu framsögu sem við framsóknarmenn styðjum efnislega enda hefur hv. þm. Eygló Harðardóttir ritað nafn sitt undir þetta álit sem til framfara horfir.

Mig langar að spyrja hv. þingmann og formann nefndarinnar einnar spurningar í það minnsta og hún varðar það að stjórn LÍN eigi að útfæra þetta greiðslumat. Ég á því miður ekki sæti í þessari nefnd en er mikill áhugamaður um þessi mál. Hefur nefndin fengið stjórnendur sjóðsins á sinn fund og fékk hún einhverja tilfinningu fyrir því hvernig þetta verður útfært? Að sjálfsögðu er lagasetning sem þessi ekki góð ef skilyrðin verða það ströng að krafan um ábyrgðarmenn muni eftir sem áður standa. Mér finnst því mjög gott að hv. þingmaður skuli hafa getið þess sérstaklega í framsögu sinni að nefndin telji að það eigi að túlka mjög vítt þær heimildir sem stjórn LÍN á að útfæra. Því væri eftirtektarvert að vita hvort að á vettvangi nefndarinnar hafi nefndarmenn fengið að vita hugmyndir stjórnar LÍN um hvernig þetta verði útfært og ef ekki, hvort nefndin ætli sér í framhaldinu að beita sér fyrir því og kalla stjórn LÍN á sinn fund til að fylgja þessu máli eftir þannig að sem flestir háskólanemar þurfi ekki að hafa ábyrgðarmann á sínum lánum.

Þetta er mjög gott mál að því leyti til að það snýr að því grundvallarsjónarmiði að veita öllum jafnt tækifæri til náms og það er einfaldlega þannig að ekki geta allir jafnvel leitað eða vilja leita til einstaklinga úti í bæ til að skrifa upp á fyrir sig. Það getur jafnvel verið hluti af lífsskoðun viðkomandi að gera ekki slíkt þannig að ég fagna því verulega að við skulum stíga þetta skref. En eins og ég segi og eins og kom fram hjá hv. framsögumanni nefndarinnar þá er það stjórnar LÍN að útfæra þetta mál með þessum hætti og ég hefði viljað sjá að nefndin mundi fylgja þessu álitamáli eftir því að útfærslan skiptir öllu í þessu máli.

Mig langar að lokum að spyrja hv. framsögumann nefndarinnar hvort nefndin hafi ákveðið að fjalla eitthvað um framfærslu námsmanna og þau lífsskilyrði sem námsmenn búa við í dag. Eins og við vitum öll er þröngt í þjóðarbúinu og erfitt að auka útgjöld að miklu leyti. En mér finnst, ef ég horfi ískalt á málin, ansi furðulegt eins og staðan er í samfélaginu í dag að það sé hagstæðara fyrir fólk að vera án atvinnu og þiggja atvinnuleysisbætur en stunda nám og þiggja námslán sem viðkomandi borgar fyrir á endanum. Það hlýtur að vera þjóðhagslega hagkvæmt að stuðla að umhverfi sem er þannig að hagstæðara sé fyrir fólk að stunda nám heldur en að vera á atvinnuleysisbótum. Þess vegna finnst mér mikilvægt að heyra hjá hv. formanni menntamálanefndar hvort hún hafi velt þessum hlutum fyrir sér því að við lifum á einstökum tímum þar sem Atvinnuleysistryggingasjóður er einn stærsti vinnuveitandi landsins — hann mun að öllu óbreyttu á tólf mánaða tímabili borga yfir 20 milljarða kr. í bætur — hvort ekki væri rétt að horfa á samspil þess sjóðs og Lánasjóðs íslenskra námsmanna, hvort við getum ekki breytt þessu umhverfi einhvern veginn því að eins og hlutirnir eru núna þá finnst mér afleitt að hlutirnir skuli vera með þessum hætti. Við þurfum að hvetja til náms og við þurfum líka í því ástandi sem blasir við okkur að hvetja fólk sérstaklega til að stunda nám þannig að þegar betur árar á vinnumarkaði þá komi fólk út á vinnumarkaðinn sem hefur þó á þessum erfiðu tímum nælt sér í þekkingu og menntun við hæfi og mun þar af leiðandi í framhaldinu skila íslensku samfélagi meiri skatttekjum en ella og jafnvel geta nýtt menntun sína og þekkingu til að auka við atvinnustarfsemi í landinu og fleira mætti nefna í þeim efnum.

Ég nefni þetta vegna þess að vonandi verður kreppan tímabundin og ef við getum fengið ríkisstjórnina til að hætta við þennan Icesave-skandal sem blasir við okkur — og nú horfi ég mjög blíðlega til hæstv. menntamálaráðherra sem ég veit og þykist vita að hafi mikla sannfæringu fyrir því að sá samningur sem verður ræddur hér á næstu dögum gangi hreinlega ekki upp og við þurfum að senda aðra nefnd til að semja upp á nýtt því að greiðslubyrðin af þessu Icesave-samkomulagi, bara vextirnir á fyrsta ári, eru 42 þúsund millj. kr. Þetta eru gríðarlega háar upphæðir og þess vegna er grátlegt í samhengi við þessa umræðu að jafnvel 100–200 millj. kr. gætu skipt sköpum fyrir framfærslu námsmanna. Ef við setjum 200 millj. kr. í samhengi við 42 þús. millj. kr. þá er það hálft prósent af þeirri upphæð ef ég get skotið á það svona sirka — þá er það hálft prósent, 200 millj. kr. sem gæti breytt Lánasjóði íslenskra námsmanna varanlega og aukið hag og bætt tekjur námsmanna og hvatt fólk frekar til náms.

Ég þakka hæstv. ráðherra að vera viðstödd þessa aðalumræðu um þetta mál því að nú er það komið til þingsins og hún mælti rösklega fyrir því við 1. umr. Það er til fyrirmyndar að ráðherra í ríkisstjórninni skuli vera viðstaddur þessa umræðu. Það væri mjög áhugavert í þessari umræðu sérstaklega að kalla fram viðbrögð hjá hæstv. ráðherra hvað henni finnist um þetta samspil annars vegar á milli atvinnuleysisbóta og hins vegar þess framfærslugrunns sem ég ræddi hér sem er allt of lágur. Ég held að allir geti verið sammála um það. Og það að framfærslugrunnurinn skyldi ekki hafa verið hækkaður núna þegar verðbólga síðustu tólf mánuði hefur verið um það bil 14–15% þýðir einfaldlega að framfærslugrunnurinn er að lækka um þá upphæð. Það er allt miklu dýrara á Íslandi í dag og miklu erfiðara fyrir fólk og þá líka námsmenn að framfleyta sér í þessu erfiða árferði þegar verðlag hefur hækkað svona mikið. Í ofanálag er það líka þannig að námsmenn sem áður margir hverjir unnu mikið samhliða námi, söfnuðu sér peningum, tóku jafnvel ekki námslán, hafa ekki kost á því í dag þannig að við erum að tala um gjörbreytt ástand. Ég held að það væri mjög til hins góða að við gætum þvert á stjórnmálaflokka komið okur saman um að fara í einhverjar aðgerðir til í fyrsta lagi að efla hvatann eins og staðan er í dag, til að fara í nám og í raun koma okkur úr þessum skotgröfum sem við erum hér vanalega í meðal annars út af stórum efnahagsmálum. En hér eru mál sem ég held að við getum alveg sammælst um þvert á flokka að breyta til að auka lífsgæði íslenskra námsmanna. Ég hef hitt fulltrúa frá meðal annars stúdentum við Háskóla Íslands sem hafa lýst yfir megnri óánægju eðlilega yfir þessum lága framfærslugrunni. Þess vegna væri eftirtektarvert að heyra það hjá hæstv. ráðherra hvort hún hyggist á þessu sumarþingi — því ég held að það sé alla vega mánuður eftir af þessu sumarþingi — hvort hún hyggist leggja fram mál hér á þingi sem gæti bætt stöðu námsmanna, bætt þeirra kjör með einhvers konar samspili á milli Atvinnuleysistryggingasjóðs og lánasjóðsins. Ég held að það sé mikilvægt að fá það fram í þessari umræðu og ég tel það hagsmunamál fyrir okkur öll að gera nám eftirsóknarverðara en það er í dag þannig að fólk geti í raun lifað samhliða því að stunda nám því fólk gengur ekki í störf eins og áður, alla vega ekki í eins miklum mæli. Þess vegna væri mikilvægt að heyra bæði frá hæstv. ráðherra og formanni nefndarinnar hvaða vinna sé í gangi til að leiðrétta þennan mun því ég er alveg sannfærður um að ef við breytum þessu samspili þá væri það til hagsbóta ekki bara fyrir námsmenn heldur landið allt, íslenska þjóð til framtíðar litið. Því legg ég höfuðáherslu á að menn nýti þær vikur sem eru eftir af þinginu, þ.e. ef lagabreytinga er þörf, til að betrumbæta þessi mál. Það er að minnsta kosti stefna okkar framsóknarmanna og vilji til þess að leggja áherslu á það hér á þessu þingi og við erum tilbúnir að leggja okkar lið í þá vegferð og vonandi verður hún farin.