Lánasjóður íslenskra námsmanna.
Frú forseti. Já, staðan sem við erum í er náttúrlega ekkert venjuleg, mér líður eins og við séum í svokallaðri rústabjörgun og þá held ég að leiðin geti svo sem ekki legið neitt annað en bara upp á við. Aðrir sem hafa farið á undan okkur hafa kannski svona að nokkru leyti lagt þjóðfélagið í rúst og nú erum við komin að því að byggja upp aftur. Ég held að það sé engin þörf á því að ræða um það og ég held að enginn hafi neinn áhuga á því í þessu uppbyggingarstarfi að svínbeygja hvorki einn né neinn. En að sjálfsögðu tala allir fyrir sínum málstað. Staðan er þannig að til þess einmitt að góðir sjóðir eins og Lánasjóður íslenskra námsmanna geti í framtíðinni, alla vega þegar barnabörnin okkar fara í nám, verið í góðu lagi og þau geti fengið lágmarksframfærslu þá held ég að við þurfum að fara í þær sársaukafullu aðgerðir sem við erum nú á fullu í.