137. löggjafarþing — 30. fundur,  30. júní 2009.

umfjöllun fjárlaganefndar og allsherjarnefndar um skýrslur Ríkisendurskoðunar.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dags. 29. júní 2009, hefur forseti óskað eftir því við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármálastjórn 50 ríkisstofnana.

Þá hefur forseti óskað eftir því við allsherjarnefnd með bréfi, dags. 29. júní 2009, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar og ársáætlanir 2008.

Þetta er í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar 2008.