137. löggjafarþing — 30. fundur,  30. júní 2009.

skýrsla fjármálaráðherra um áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009--2013.

126. mál
[16:28]
Horfa

Valgeir Skagfjörð (Bhr) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir fyrirspurnina. Mér heyrðist þetta vera áhugaverð hugmynd og ég heyrði ekki betur en hér í ræðustóli hafi formaður fjárlaganefndar meira að segja haft áhuga á að skoða þessa hugmynd. Hún er allrar athygli verð og ég tel að það sé vert að skoða hana nánar.