137. löggjafarþing — 30. fundur,  30. júní 2009.

skýrsla fjármálaráðherra um áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009--2013.

126. mál
[16:53]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni og er tilbúinn að setjast yfir það með honum og við getum flutt frumvarp um það saman annaðhvort núna eða næst þegar hann tekur sæti á þingi um þetta mál, þ.e. að hér verði sett af stað mjög umfangsmikil vinna til að nýta vistvæna orku til að mynda á bílaflota landsmanna.