137. löggjafarþing — 33. fundur,  2. júlí 2009.

þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave.

[10:59]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég skal svara þessu afdráttarlaust. Mér finnst engin mál of snúin fyrir þjóðina, engin mál. Það á við um þau mál sem hér voru nefnd eins og öll önnur.