137. löggjafarþing — 33. fundur,  2. júlí 2009.

ríkisábyrgð á lántöku tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[11:29]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég tek til máls um fundarstjórn forseta til þess fyrst og fremst að minna á að hæstv. forseti hefur ekki svarað fyrirspurn sem kom frá hv. þm. Pétri H. Blöndal áðan. Hv. þingmaður kom með vel rökstudda og málefnalega spurningu til hæstv. forseta sem varðaði það hvort taka ætti þetta mál á dagskrá. Ég hef ekki orðið þess var að hæstv. forseti hafi svarað fyrirspurninni.