ríkisábyrgð á lántöku tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðutryggingar hjá Landsbanka Íslands hf.
Forsaga þessa máls er sú, ef við byrjum þar sem tilskipunin var innleidd í íslenskan rétt með lögum nr. 98/1999, þá innleiddum við tilskipun um innlánstryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta í landsrétt okkar. Á grundvelli laganna varð til nýr tryggingarsjóður, Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta sem starfað hefur síðan. Þegar farið er yfir umræður um það mál á Alþingi í desembermánuði þessa árs lá það þegar fyrir og mátti öllum vera ljóst að lágmarksupphæðir sem tryggðar væru þá 1,7 millj. í íslenskum krónum skyldu greiddar hlutfallslega inn á kröfur. Þessi fjárhæð var tengd við evru 5. janúar 1999 og þannig varð til hin margfræga upphæð 20.887 evrur.
Í forsendum málsins var ljóst að ef upp kæmi sú staða að sjóðurinn réði ekki við af eigin burðum að ábyrgjast lágmarksinnstæðurnar væri honum heimilt að taka lán til að greiða kröfuhöfum. Í framsöguræðu þáverandi viðskiptaráðherra Finns Ingólfssonar var enn frekar hnykkt á þeim skilningi að sjóðnum bæri að bæta upp tjón sparifjáreigenda að lágmarki 1,7 millj. kr. hvort sem eignir hans dygðu til þess eða ekki. Sem sagt, þessi nefnda upphæð hefur legið fyrir æ síðan, að sjóðurinn væri skuldbundinn til að tryggja innstæður á öllum innlánsreikningum sem íslenska innlánstryggingakerfið tæki til upp að þessum upphæðum.
Það er þá næst til að taka að Landsbanki Íslands var einkavæddur árið 2002 eða endanlega einkavæddur það ár. Ef ég man rétt var söluandvirði Landsbankans 11 milljarðar króna. Honum tókst engu að síður fáeinum árum síðar að skulda yfir 3.000 milljarða. Hann fór í þrot í haust, eins og kunnugt er, með ómældu tjóni fyrir íslenskt þjóðarbú. Ómældum tjóni fyrir fjölmarga sem átt höfðu viðskipti við hann eða lánað honum fé, ómældu tjóni fyrir íslenska ríkið í þeim skilningi að nú þarf að endurreisa bankann og endurfjármagna hann og síðast en ekki síst með hrikalegu tjóni vegna þess að bankinn hafði safnað inn á reikninga í útibúum sínum í tveimur grannlöndum gríðarlegum fjárhæðum. Þetta hafði íslenskur banki gert á grundvelli íslenskra starfsleyfa og undir eftirliti íslenskra eftirlitsstofnana. Svo seint sem í maí 2008, nokkrum mánuðum fyrir hrunið, löngu eftir að áhyggjur höfðu farið vaxandi bæði innan lands og erlendis af því að íslenska bankakerfið stæði veikum fótum hóf Landsbankinn að safna inn á Icesave-reikninga í Hollandi og tókst á ótrúlega skömmum tíma að hlaða upp á þá reikninga aldeilis ótrúlegum fjárhæðum eða 1 milljarði 674 millj. 285 þús. 671 evru. Þetta voru dýrkeyptir mánuðir fyrir íslenskt þjóðarbú og bættust við þær miklu upphæðir sem áður höfðu safnast inn á sambærilega reikninga í Bretlandi en þar voru þegar mest lét 4 milljarðar 526 millj. 988 þús. 847 pund. Þetta gerir á núverandi verðlagi um 1.244 milljarða íslenskra króna sem safnast höfðu á innlánsreikninga íslensks banka í útibúum hans sem á grundvelli hins evrópska réttar og tilskipunarinnar eru nákvæmlega eins hvort sem þau eru í London eða Breiðholtinu. Þetta er upphaf þessa máls í stuttum máli rakið, eins og það var í haust þegar bankahrunið varð.
Í aðdraganda þess höfðu að sjálfsögðu átt sér stað ýmis samskipti bæði íslenskra, breskra og hollenskra yfirvalda. 2006 lentu íslensku bankarnir í talsverðum erfiðleikum og gripu til ýmissa ráðstafana sem litu út fyrir að hafa lagað stöðu þeirra og gert þeim kleift að takast betur á við framhaldið. Engu að síður er ljóst að sú aðvörun sem menn fengu þá dugði ekki, bæði bankarnir sjálfir og stjórnvöld, til að menn kynnu fótum sínum forráð í framhaldinu. Þvert á móti gripu menn til ráða til að halda rekstri sínum gangandi sem nú eru að reynast íslensku þjóðarbúi ofboðslega dýrkeypt. Þegar aðgangur bankanna að lausafé á almennum markaði gerðist æ erfiðari gripu þeir og sérstaklega í þessu tilfelli Landsbankinn til óyndisúrræðis. Þeir hófu að safna innlánum frá almenningi í stórum stíl í nágrannalöndunum í útibúum í þessu tilviki, ekki dótturfélögum, á ábyrgð innlenda innlánstryggingakerfisins. Landsbankinn átti dótturfélag í Bretlandi en kaus að nota það ekki eins og aðrir bankar gerðu, sérstaklega Kaupþing. Það eitt og sér hefði gjörbreytt þessu máli ef Landsbankinn hefði látið sér nægja að hefja slíka starfsemi ekki í útibúi heldur í dótturfélagi.
Áhyggjur í þessum löndum fóru vaxandi og það voru samskipti við íslensk stjórnvöld en skemmst er frá því að segja að bankarnir sjálfir, m.a. með auglýsingum sínum þar sem þeir kynntu vöruna fullvissuðu viðskiptavinina um að ekkert væri að óttast og íslensk stjórnvöld gerðu slíkt hið sama. Það gerðu þau með bréfaskriftum, það gerðu þau með kynningarfundum og það gerðu þau með margvíslegum hætti þar sem fullyrt var að ekkert væri að óttast. Það má örugglega fullyrða, virðulegur forseti, að milljarðarnir 11 sem fengust fyrir Landsbankann 2002 séu dýrustu milljarðar Íslandssögunnar. Sennilega hefur aldrei átt sér stað mislukkaðri sala á nokkrum hlut í eigu ríkisins en þar varð. Við getum hugleitt það ef menn hefðu borið gæfu til þess á þeim tíma að láta sér nægja að einkavæða annan bankann, Búnaðarbankann, og haldið stærsta banka landsins og elsta áfram í eigu ríkisins sem vonandi hefði nægt til þess að menn hefðu aldrei lent í ógöngum af þessu tagi.
Eftir hrun bankanna bönkuðu stjórnvöld viðkomandi ríkja upp á og spurðu hvernig Íslendingar hygðust standa við skuldbindingar sínar á grundvelli innlánstryggingakerfisins. Íslensk stjórnvöld reyndu að bera fyrir sig lagaóvissu um umfang ábyrgðarinnar eða innlánstryggingarinnar en það er skemmst frá því að segja að á það var ekki hlustað. Íslensk stjórnvöld einangruðust algerlega á örfáum dögum með það sjónarmið sitt að eitthvað annað kæmi til greina en að íslenska ríkið ábyrgðist og stæði á bak við innlánstryggingasjóðinn og tryggði lágmarksinnstæðurnar. Það bætti ekki úr skák og gerði málsástæður íslenskra stjórnvalda ekki auðveldari að setning neyðarlaganna var auðvitað mjög tortryggð og sú mismunun sem þar var meint af gagnaðilum okkar að upp væri komin milli innlendra viðskiptavina bankakerfisins og erlendra. Enda fór það svo á undraskömmum tíma og til að gera langt mál stutt tímans vegna, að allar tilraunir Íslendinga til að komast undan því að axla fulla ábyrgð á innlánstryggingunni upp að þessum upphæðum urðu árangurslausar og menn játuðu sig sigraða í áföngum í október og nóvember í þeim efnum. Tilraunir til að koma málinu fyrir dómstóla reyndust ófærar og í því eina tilviki sem einhver slíkur farvegur var í boði, sem var gerðardómur í framhaldi af ECOFIN-fundinum í byrjun nóvember, kusu íslensk stjórnvöld sjálf að draga málið út úr gerðardómnum og hlíta ekki þeirri niðurstöðu. Ég gagnrýni ekki þá ákvörðun í sjálfu sér, enda voru málsástæður eins og þær voru þar upplagðar óaðgengilegar fyrir okkur. Hitt er kannski umhugsunarefni hvort það hafi beinlínis bætt stöðuna að í þessu eina tilviki sem boðið var upp á einhvers konar gerðardómsmeðferð í málinu var það Ísland sem dró sig út úr henni. Það er rækilega farið yfir það í greinargerð með frumvarpinu hvernig tilraunir og skoðun á því að koma máli fyrir dómstóla báru ekki árangur og það má segja að síðustu sundin hafi lokast í þeim efnum 7. janúar þegar sá afmarkaði þáttur málsins sem hefði komið til skoðunar a.m.k. ef íslensk stjórnvöld hefðu ákveðið að kæra aðgerðir breskra stjórnvalda, rann út 7. janúar 2009.
Þannig er það, virðulegur forseti, að af margvíslegum ástæðum eins og gögn málsins bera með sér var það þegar orðin niðurstaðan af hálfu íslenskra stjórnvalda i nóvembermánuði sl. að aðeins samningaleið eða pólitísk lausn á þessu máli kæmi til greina, annað væri ekki í boði. Þetta geta menn sannreynt með því að lesa og bera saman gögn bæði í greinargerð frumvarpsins og þeim þykku fylgiskjalamöppum sem hér eru málinu til stuðnings. Það má velta því fyrir sér hversu litlu munaði í raun að gengið væri frá málinu endanlega í desember eða janúarmánuði eins og stefnt var að og reyndar heitið að gera í samstarfsyfirlýsingunni við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn síðla í nóvembermánuði en þá var eins og kunnugt er bætt inn „letter of intent“ í samstarfsyfirlýsinguna, sérstöku ákvæði til að hnykkja á ábyrgð Íslands í þessum efnum eins og þar segir, með leyfi forseta, á bls. 13 í greinargerðinni:
„Ísland hefur heitið því að virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum innlánshöfum. Þetta byggist á þeim skilningi að unnt verði að forfjármagna þessar kröfur fyrir tilstyrk viðkomandi erlendra ríkja og að jafnt Ísland sem þessi ríki séu staðráðin í að efna til viðræðna á næstu dögum með það að markmiði að ná samkomulagi um nánari skilmála vegna þessarar forfjármögnunar.“
Þarna er í raun og veru verið að segja og síðan undirritað af seðlabankastjóra og fjármálaráðherra, að það eina sem er eftir í málinu sé að semja um lánsskilmálana, lánsskilmálana á lánunum sem Bretar og Hollendingar höfðu boðist til að veita okkur í kjölfar þess að þeir gerðu upp innstæðurnar og eignuðust kröfu á okkur í staðinn. Áður höfðu Íslendingar undirritað minnisblað með Hollendingum þar sem lofað var að ganga frá málinu á þessa leið og fá til þess lán til 10 ára á 6,7% vöxtum, afborgunarlaust fyrstu þrjú árin, og vaxtagreiðslur hefðu þá hafist á þessu ári. Hefði verið gengið frá málinu með sambærilegum hætti við Breta sem í undirbúningi var, samanber fréttatilkynningar og yfirlýsingar m.a. forsætisráðherra á þessum tíma, held ég að menn geti velt því aðeins fyrir sér hver staðan væri, með lán til þetta skamms tíma á þetta háum vöxtum og aðeins með þriggja ára afborgunarleysi. Alþingi afgreiddi svo þingsályktunartillögu 5. desember sl. þar sem það fól framkvæmdarvaldinu að leiða málið til lykta með samningum og þar sem það er rækilega rökstutt bæði í greinargerð þingsályktunartillögunnar, í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar og í framsöguræðu þáverandi formanns utanríkismálanefndar, hv. þm. Bjarna Benediktssonar, að það séu ótvíræðir kostir við það í stöðunni að fara samningaleiðina og annað sé ekki í boði. Svona var staða málsins við stjórnarskipti í febrúarbyrjun. Þá var ný samninganefnd skipuð og þeim sem hér stendur falið að bera ábyrgð á samningagerðinni.
Sá árangur náðist frá þeirri stöðu sem þarna var uppi að í fyrsta lagi náðist lán til mun lengri tíma og á mun hagstæðari kjörum.
Í öðru lagi, með sjö ára vaxta- og afborgunarleysi hvað varðar ríkissjóð Íslands.
Í þriðja lagi þannig að eignir Landsbankans ganga jafnóðum inn á höfuðstólinn og lækka hann og íslenska ríkið er í vari fyrir útgjöldum af þessum sökum í sjö ár. Þetta skapar jafnframt tíma til þess að hámarka eignir Landsbankans og dregur úr hættunni á því að menn lendi í þeirri stöðu að þurfa að selja eignir á óhagstæðum tíma fyrir lægra verð en von er til að innheimtist af þeim síðar. Þessa þætti málsins verða menn held ég alla að hafa í huga ef þeir vilja láta þá niðurstöðu sem hér liggur fyrir njóta sannmælis í ljósi aðstæðna eins og þær voru þegar ný samninganefnd tók við málinu. Ég vil fá að segja það, frú forseti, að ég er ekki að kvarta eða kveina undan einu eða neinu sem hefur verið sagt í þessu máli og snýr að mér. En ég mótmæli því og mér finnst ómaklegt að gera því góða fólki sem vann þarna að erfiðu verkefni fyrir hönd Íslands og lagði sál sína og krafta í það, það að tortryggja það, þ.e. þá krafta sem skipuðu samninganefndina og þá sérfræðinga sem með henni unnu. Ég tel að þar hafi verið unnið gott starf við ótrúlega erfiðar aðstæður og menn hafa þar sannarlega landað mun betri niðurstöðu (BJJ: Ömurlegur málflutningur.) en því sem næst var búið að ganga frá í október og (Gripið fram í: Glæsileg niðurstaða.) nóvembermánuði sl. (Gripið fram í: Uppgjöf.) Ég legg til að hv. þingmenn sem fá ágætan ræðutíma á eftir mér, frú forseti, reyni nú að halda aftur af sér einu sinni í þessu máli. (Gripið fram í: … þú hafir gert það.) Leyfum stráksskapnum nú aðeins að bíða, hv. framsóknarmenn. Leyfið mér að flytja framsöguræðu mína og svo skuluð þið taka við. (Gripið fram í.)
Það er enginn vafi á því að það er gríðarlega mikilvægt fyrir Ísland að fá fram lyktir þessa máls. Það er engu okkar neitt gleðiefni að það skuli þurfa að verða svo að á íslenskan þjóðarbúskap lenda miklar byrðar út af þessu máli. En sá valkostur að komast með einhverjum hætti undan því er ekki í boði. Það held ég að öllum hljóti að vera ljóst, því miður, að við eigum engan annan kost en að takast á við þetta sem hluta af þeim heildaráföllum sem óráðsía, hagstjórnarmistök og glæframennska í fjármálum hafa leitt yfir okkur sem þjóð. Þetta er hluti af því. Þetta er hluti af herkostnaðinum sem við sitjum uppi með vegna þess hvernig menn stóðu að málum á löngu árabili. Og það er ömurlegt til þess að vita að menn höfðu jafnmörg tækifæri og á jafnlöngum tíma og raun ber vitni til að taka í taumana, til að afstýra þessum slysum en það var ekki gert. (Gripið fram í: Hvenær var stofnað til …?) Og það er ekki svoleiðis að íslensk stjórnvöld og Íslendingar séu ábyrgðarlausir í þessu máli. Það er ekki frambærilegur málflutningur. Hann horfir fram hjá staðreyndum málsins, hann horfir fram hjá því að við leiddum þetta inn í íslenskan rétt með lögmætum hætti. Hann horfir líka fram hjá því að við höfðum ótal tækifæri til að taka í taumana en gerðum það ekki. Við héldum þessu gangandi og studdum við það, gáfum út yfirlýsingar og bréf um að þetta væri í lagi fram á síðustu stundu. Svo seint sem í septembermánuði skrifar Landsbankinn langt bréf til íslenska fjármálaeftirlitsins um að Hollendingar eigi ekki að vera með neitt nöldur út af starfsemi hans þar. Þeim komi það ekki við af því að Landsbankinn heyri undir innlenda fjármálaeftirlitið. Hvað gerði innlenda fjármálaeftirlitið? Það framsendi bréfið til Hollands. Þannig var þetta og er þetta, hv. þingmenn. Og það þýðir ekki að hlaupast í burtu frá því eins og það sé ekki til. Þær efnislegu staðreyndir og þær skuldbindingar sem liggja í þessu máli eru þarna, alveg sama á hvers konar bullandi flótta menn eru frá sjálfum sér og arfleifð sinni í þessu. Það er bara veruleikinn. Menn áttu að standa öðruvísi að verki árið 2002. Menn áttu að standa öðruvísi að verki árið 2006 þegar ljóst mátti verða að íslenska bankakerfið var að vaxa hagkerfinu yfir höfuð og það voru að skapast stórhættuleg hlutföll fyrir okkur í þessum efnum. (Gripið fram í: En 2008?) 2007 og 2008 áttu menn að standa öðruvísi að verki, hv. þingmenn.
Það skiptir miklu máli að velta því síðan fyrir sér og það er eðlilegt að hv. þingmenn spyrji bæði um kjör og um þennan samning og hvort mögulegt sé að ná þar fram einhverri betri lausn. Það er út af fyrir sig hægt að hafa uppi tvenns konar sjónarmið í þessum efnum. Annars vegar það sem stundum heyrist að við eigum alls ekki að borga þetta, við eigum bara að neita því, setja undir okkur hausinn og segja: Þetta kemur okkur ekki við. Það stenst ekki mikla skoðun að Ísland eigi slíka leið út úr málinu.
Þá er í öðru lagi hægt að velta því fyrir sér, er þetta nógu góður samningur? Voru aðstæður í málinu til að ná þar betra fram? Borga þetta að einhverjum hluta, fá lægri vexti eða hvað menn hefðu annað kunnað að vilja?
Það er auðvelt að tína fram rökin fyrir því að það sé ósanngjarnt, óréttlátt og skítt að við Íslendingar skulum þurfa að sitja uppi með þetta. Það er fárra mínútna verk að gera það. En það verður líka að horfa á hina hlið mála. Það verður, held ég, að horfa þar alveg sérstaklega á tvenns konar rök, þau sem snúa að stöðu okkar og ábyrgð okkar í því hvernig þetta mál þróaðist, aðgerða- og andvaraleysi okkar sem leiddi þessar aðstæður sumpart yfir okkur. Þær staðreyndir málsins hverfa ekki frekar en aðrar. Og verðum við svo ekki líka, eins og jafnan, að bera saman við málið og niðurstöðuna sem hér er lögð fram þann valkost að hafna henni og velta þá fyrir okkur afleiðingum þess. Komum við málinu út úr heiminum með því? Nei. Það verður bara þarna áfram óleyst. Hvaða afleiðingar hefur það? Það strandar öllu aðgerðaplaninu sem nú er unnið eftir og snýr endurreisn íslensks efnahagslífs, það strandar því öllu. Það liggur fyrir, rækilega skjalfest, að samstarfsáætlunin við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og afgreiðsla gjaldeyrislána þaðan strandar. (Gripið fram í.) Það liggur rækilega skjalfest fyrir að gjaldeyrislánafyrirgreiðsla frá hinum Norðurlöndunum strandar sömuleiðis. (Gripið fram í.) Strandar sömuleiðis. — Ef hv. þingmenn gætu nú þagað augnablik þá gæti maður kannski útskýrt eitthvað fyrir þeim, en það er erfitt þegar þeir fást ekki einu sinni til að hlusta.
Varðandi gjaldeyrislánin frá hinum Norðurlöndunum er það einfaldlega þannig að þau bíða afgreidd og undirrituð, greiðast í fjórum jöfnum afborgunum eftir því sem samstarfsáætlunin við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn reiðir fram og það lá líka fyrir af hálfu Norðurlandanna að ein forsenda þeirrar fyrirgreiðslu væri að farsæl lausn fyndist á óútkljáðum málum okkar varðandi innlánstryggingar við önnur lönd. (Gripið fram í: Þetta er kúgun.) Ég vona að hv. þingmenn kynni sér þau gögn sem nú liggja fyrir í þessu máli, ítarlega greinargerð með frumvarpinu, fylgiskjalamöppu með 68 fylgiskjölum og öðrum með rúmlega 20 sem þingmenn sjálfir hafa til skoðunar en eru gögn þess eðlis að Íslandi er óheimilt að birta þau vegna samskipta sinna við gagnaðilann. Þar er fyrst og fremst um að ræða gögn sem ekki skipta miklum sköpum í þessum efnum, minnisblöð embættismanna eftir pólitíska fundi ráðherra og samkvæmt hefðum og venjum getur annar aðili slíks máls ekki gert slík gögn opinber. Þá held ég að ýmislegt skýrist fyrir hv. þingmönnum þegar þeir hafa farið yfir þetta og skoðað samhengi málsins og það er þetta nákvæmlega sem ég segi.
Ég tel að lánskjörin sem hér hefur samist um séu um það bil eins hagstæð og Ísland gat fengið. Menn hafa hrópað nokkuð um að 5,5% fastir nafnvextir á óverðtryggðu láni séu háir og bera það þá gjarnan saman við breytilega vexti á lánum til skamms tíma í augnablikinu. Menn sjá það líka ef þeir skoða lánskjörin frá hinum Norðurlöndunum að þar eru lægri vextir á ferð í bili. Það er vegna þess að viðmiðunin í augnablikinu eru sögulega mjög lágir vextir. En það er athyglisvert fyrir menn að velta því fyrir sér og bera það saman við lánskjörin hér og höfum í huga að vaxtaálagið á Íslandi er einhvers staðar á milli 650 og 700 punktar, 6,5–7% ofan á grunnvexti ef við fengjum einhvers staðar lán á þeim kjörum í dag. Norðurlandalánin eru með 275 punkta álagi ofan á rétt rúmlega 1% viðmiðunarvexti í dag, gerir 3,8% liðlega. Ef þessir vextir á Norðurlandalánunum eru með viðurkenndum aðferðum umreiknaðir yfir í fasta vexti á 12 ára láni eins og þarna er um að ræða með 275 punkta álagi þá gerir það 6,57% vexti. (Gripið fram í: Þá hækkar Icesave.) Það ættu hv. þingmenn að hafa í huga.
Það er líka umhugsunarefni að vaxtaálagið á Icesave-samningunum, 125 punktar, er lægra en það vaxtaálag sem notað er þegar þjóðir sem komist hafa í greiðsluþrot fá fyrirgreiðslu í farvegi svonefnds Parísarklúbbs en þá er yfirleitt notað 150 punkta álag. Þeir föstu vextir sem festir voru á þessu vaxtaálagi á dögunum hafa nú þegar hækkað um 13 punkta þannig að það er ástæða til að ætla að vegna þess hvernig þetta stóð af sér í tíma þá hafi þar verið festir mögulega einhverjir lægstu vextir sem við eigum eftir að sjá á áratugaskeiði í þessum efnum. Þetta eru lægstu vextir langra lána til þess tíma sem sést hafa í 50 ár og gætu vel átt eftir að reynast það til frambúðar. Enn fremur er það þannig að í lánasamningnum er kostnaðarlaust uppgreiðsluákvæði. Við getum hvenær sem er greitt samninginn niður inn á höfuðstólinn eða greitt hann upp ef okkur skyldi einhvern tíma bjóðast hagstæðari fjármögnun annars staðar.
Þá er spurning um það, ræður íslenska þjóðarbúið við þessar skuldbindingar á árabilinu 2016–2024 eða árunum sem þá fara í hönd? Það er vissulega stór spurning. En það reynir á það eftir sjö ár og þau sjö ár eru okkur mjög mikilvæg. Eitt vitum við fyrir víst, hv. þingmenn, að ef við komumst aldrei með þjóðarbú okkar til 2016 þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því. Við þurfum fyrst að komast í gegnum þá erfiðleika sem núna standa yfir og blasa við okkur næstu missirin, koma þjóðarbúinu á kjöl, eða vilja menn gefast upp strax? Er það ekki það sem valkosturinn snýst um? Ég segi það, það er sannfæring mín eftir að hafa skoðað þessa hluti, það eru ekki þessi mál sem eru okkur alvarlegasta áhyggjuefnið í augnablikinu. Það er glíman við að komast í gegnum erfiðleikana næstu missirin og ráða við þá þungu greiðslubyrði sem við fáum á okkur núna og við þurfum að kljást við næstu árin. Fyrst þurfum við að komast í gegnum þá erfiðleika til að geta farið að hafa áhyggjur af því hvar við stöndum árið 2016. Ef við komumst í gegnum þá komum við efnahagslífi okkar á góðan rekspöl, rekum þjóðarbúið með þeim afgangi í viðskiptum við útlönd sem nú er reiknað með að verði, t.d. ef við fáum marga mánuði eins og júnímánuð þar sem afgangur af vöruskiptum við útlönd var 8,7 milljarðar kr. þá erum við á réttri leið. Ef við komum ríkisfjármálunum á réttan kjöl samkvæmt þeirri áætlun sem nú er unnið eftir þannig að hagnaður verði orðinn af rekstri ríkissjóðs árið 2013, þá erum við á réttri leið. Fyrst þurfum við að gera allt þetta, að komast í gegnum alla þessa erfiðleika og þá erum við í góðum færum til að ráða við framhaldið, annars ekki. Þess vegna er það sem við þurfum að velta því mjög vel fyrir okkur, ætlum við að láta þetta stranda hér og nú? Hvað gerist ef Icesave fellur? Þá kemur október aftur. (Gripið fram í.) Þá kemur október aftur (BJJ: Hræðsluáróður.) og það hefur enginn bent á neitt sem vísar í þá átt að við værum í betri stöðu til að greiða úr okkar málum ef þetta strandar allt hér og nú. Mín spá er sú að það yrðu ekki margir mánuðir liðnir frá því að menn felldu þennan samning að menn dauðsæju eftir því og líklegasta niðurstaðan að mínu mati væri sú að íslensk stjórnvöld færu til viðsemjendanna og bæðu um gamla samninginn aftur. Það er mín spá. (HöskÞ: Uppgjafartónn.) Ég vona að hún rætist aldrei og ég trúi því að þetta sé leið sem gefi okkur færi á að berjast áfram við erfiðleikana. Það verður erfitt. Það er okkur öllum mjög erfitt að þurfa að sætta okkur við þessa niðurstöðu en hún er óumflýjanleg með einum eða öðrum hætti. Við komumst ekki undan þessu máli, það yfirgefur okkur ekki. Það verður þarna hvort sem niðurstaða Alþingis verður að leysa það á þennan hátt eða einhvern annan.
Ég bjó ekki þetta vandamál til. Ég fékk hins vegar það hlutskipti að reyna að greiða úr herfilegri stöðu sem málið var komið í. Ég hef lagt mig allan fram um að reyna að gera það ásamt með góðu fólki og ég hef góða samvisku gagnvart mínum þætti í þessu máli. Ég trúi því að við séum að gera rétt fyrir Ísland, að við séum að skapa okkur vígstöðu til að kljást áfram við erfiðleikana og við eigum að sigrast á þeim. Það er markmiðið. Það er það sem öllu máli skiptir að Ísland komist í gegnum þetta.
Virðulegi forseti. Ég legg svo til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. fjárlaganefndar.