ríkisábyrgð á lántöku tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Hér er rætt um heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. Án ábyrgðar ríkissjóðs fengi innstæðutryggingarsjóðurinn ekki þau erlendu lán sem hér búa að baki og gæti ekki staðið í skilum með skuldbindingar sínar.
Stóra spurningin í þessu máli er: Hvers vegna ætti íslenska ríkið að ábyrgjast lán innstæðutryggingarsjóðsins? (Gripið fram í.) Það verður ekki sagt um ríkisstjórnina og kannski sérstaklega hæstv. fjármálaráðherra upp á síðkastið að hann hafi skort rökin og ástæðurnar. Þær koma nýjar nánast á hverjum degi. Með hverju viðtalinu nánast í hvert sinn sem hann tjáir sig um málið koma nýjar ástæður fyrir því að ríkissjóður Íslands eigi að gangast í ábyrgð fyrir þessum gríðarlegu lántökum. Allar þessar ástæður eru á skjön við fyrri málflutning sama manns sem allt þar til hann tók sæti í ríkisstjórn var okkar allra harðasti andstæðingur þess að yfir höfuð væri leitað pólitískrar lausnar á þessu máli. Þá vísaði hann í lögfræðiálitin sem nú hafa verið lögð til hliðar og önnur andstæð tekin upp og þeim haldið á lofti. Og þegar litið er yfir feril þessa máls undanfarna mánuði þá hefur það verið átakanlegt að fylgjast með síbreytilegum málflutningi ríkisstjórnar vinstri flokkanna, allt frá því að í stjórnarsáttmála þeirra var tekið fram að nú skyldu alþjóðlegir sérfræðingar ráðnir til að veita aðstoð við samninga vegna innstæðutrygginga, nokkuð sem að þeirra mati hafði verið látið undir höfuð leggjast fram að því.
Ríkisstjórnin byrjaði á því að lýsa vantrausti á þá embættismenn sem leitt höfðu samningaviðræðurnar fyrir hönd fyrri ríkisstjórnar. Viku þeim til hliðar, sendu þá í frí og skipaðir voru nýir í þeirra stað. Formaður var skipaður Svavar Gestsson en auk hans tók Indriði Þorláksson, núverandi aðstoðarmaður fjármálaráðherra, sæti í nefndinni. Með því að nefna þessa menn er ekki verið að lýsa því yfir að þeir hafi ekki staðið sig heldur er bara verið að vekja athygli á þeirri staðreynd að ríkisstjórnin vildi taka þetta mál sínum eigin tökum. Hæstv. fjármálaráðherra sagði í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins, með leyfi forseta:
„Ég treysti Svavari Gestssyni. Ég veit að hann er að gera góða hluti og ég lofa þér því að það er í sjónmáli að hann landi — og hans fólk — glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur.“
Hann dró í land með þessa yfirlýsingu að hluta til en það dylst engum að niðurstaðan átti að vera „þessarar ríkisstjórnar“. Þeirra menn áttu að landa góðri niðurstöðu sem þessi ríkisstjórn ætlaði að eigna sér. Nú er ríkisstjórnin á harðahlaupum frá þessu plani. Svo mikil hafa umskiptin orðið að greinargerðin með þessu frumvarpi er á löngum köflum eins og samantekt á málflutningi viðsemjenda okkar í þessu máli. Málflutningur þeirra er að stórum hluta til nú orðinn málflutningur og meginrök ríkisstjórnarinnar. (Gripið fram í: Sammála.)
Og hvernig er þeirri grundvallarspurningu sem ég bar upp áðan svarað í þingmálum? Hvers vegna ætti íslenska ríkið að fallast á að ábyrgjast lántökur innstæðutryggingarsjóðsins? (Fjmrh.: Þið voruð búnir að lofa því í október, nóvember …) Þið voruð búnir að lofa því, kallar hæstv. fjármálaráðherra fram í. Við skulum fara aðeins yfir rökin. (Gripið fram í.) Það er gælt við lagaleg rök í þessu frumvarpi, það er gælt við þau lagalegu rök að slík ríkisábyrgð sé lagaskylda. Það er daðrað við það að þegar lögin voru sett á sínum tíma hafi það komið fram hjá þáverandi hæstv. viðskiptaráðherra. En þessi málflutningur stenst enga skoðun. Um það vitna lögfræðiálitin sem hæstv. fjármálaráðherra hefur sjálfur vísað til allt þar til hann tók sæti í ríkisstjórninni. Ég ætla að leyfa mér að lesa upp úr grein þeirra Lárusar L. Blöndals og Stefáns Más Stefánssonar, með leyfi forseta, þar sem segir:
„Í tilskipuninni segir að innstæðutryggingarkerfin skuli fjármögnuð af innlánsfyrirtækjunum – sem sagt ekki ríkinu. Þá er sagt að tryggingakerfin megi ekki leggja þá bagga á innlánsfyrirtækin að það íþyngi bankastarfseminni. Því er augljóst að miklar takmarkanir eru á því hve langt má ganga við ákvörðun um framlög innlánsfyrirtækjanna. Í þessu samhengi er rétt að spyrja hvernig íslenska löggjöfin hefði þurft að vera úr garði gerð til að tryggja lágmarksgreiðslu til allra, samkvæmt tilskipuninni miðað við þær aðstæður sem sköpuðust á tiltölulega skömmum tíma fyrir bankahrunið. Svarið er að greiða hefði þurft hátt í 50% af öllum innstæðum inn í tryggingakerfið.“
Það er augljóst og það er óumdeilt og það kemur fram í inngangi þeirrar reglugerðar sem íslenska lagasetningin byggir á. Það hefur komið fram í skýrslum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sjálf gefið út. Það hefur komið fram í álitum frá seðlabanka Frakklands og það hefur komið fram í fjölmörgum íslenskum lögfræðiálitum í þessu máli að þetta kerfi er ekki smíðað til að taka við hruni bankakerfis. (Gripið fram í: … greiddu atkvæði gegn því í desember.) Lagalegu rökin eru því ekki til staðar, a.m.k. gat ég ekki heyrt það í málflutningi fjármálaráðherrans þó að hann daðraði við þetta af og til, að hans niðurstaða væri sú að hér væri lagt til að við samþykktum ríkisábyrgð á þessum forsendum, að fyrir því væru lagalegar forsendur. Þetta er hins vegar annað en að viðsemjendur okkar séu ósammála um málið. Þeir eru ósammála okkur um þetta. Það eru næstu rök. (Gripið fram í.) Allir eru ósammála okkur um þetta vegna þess að þeir vilja ekki samþykkja þetta. Hæstv. viðskiptaráðherra segir: Það er vegna þess að við verðum Kúba norðursins. Það skiptir engu máli þó að viðsemjendur okkar sem hafa allt aðra tækni en við séum okkur ósammála um niðurstöðuna í þessu máli. Þannig er það alltaf þegar menn fara með ágreining fyrir hlutlausa dómstóla. Það eru tveir aðilar sem deila og það kemur meira að segja fram í þessu frumvarpi og í greinargerðinni að það sem menn óttuðust var áframhaldandi hrun bankakerfisins í Evrópu. Það eru ekki nægileg lagaleg rök. Það eru ekki einu sinni pólitísk rök fyrir því að við samþykkjum ríkisábyrgð.
Vegna þess að þessi rök eru ekki til staðar þá hefur hæstv. fjármálaráðherra ákveðið að grípa til þess ráðs að segja: Það var búið að semja um þetta. Þannig er toppnum í rökstuðningnum náð á bls. 17 í greinargerðinni þar sem segir að heildarfjárhæð skuldbindinganna var því ekki samningsatriði heldur var verkefnið að semja um sem hagstæðasta skilmála. Sem sagt, það var búið að semja um þetta fyrir löngu síðan hvort eð er. Við höfum hlaupið frá því að eiga okkar eigin samningamenn og við höfum hlaupið frá því að reyna að ná glæsilegri niðurstöðu. Í raun vorum við bara að semja um vexti og kjör.
Í þessari umræðu er gjarnan vísað til nefndarálits og framsöguræðu minnar sem formanns utanríkismálanefndar og nefndarálits meiri hlutans og ég ætla að gera það líka. Ég ætla ekki að taka valda kafla sem þjóna málflutningi ríkisstjórnarinnar í þessu máli. Ég ætla að taka þá kafla sem skipta máli í því nefndaráliti þar sem segir, með leyfi forseta:
„Frumforsenda þess að leitað væri pólitískrar lausnar á málinu var að tryggt yrði að tekið yrði tillit til hinna erfiðu aðstæðna sem nú eru uppi á Íslandi. Þau umsömdu viðmið sem þingsályktunartillagan fjallar um fela í sér viðunandi forsendur fyrir lausn að áliti meiri hlutans. Ekki er fallið frá þeim lagarökum sem Ísland hefur sett fram, en fallist á að leita samninga á grundvelli sameiginlegra viðmiða. Þau eru annars vegar að tilskipunin gildi með sama hætti hér á landi og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu og hins vegar að samningar um lausn taki mið af sérstakri og fordæmislausri stöðu Íslands. Hvorugar þessara forsendna geta talist íþyngjandi fyrir Ísland eða íslenska hagsmuni.“
Annars staðar í nefndarálitinu segir svo:
„Leiði samningar ekki til ásættanlegrar niðurstöðu fyrir Ísland“ — og ég endurtek: — „Leiði samningar ekki til ásættanlegrar niðurstöðu fyrir Ísland er það sjálfstætt úrlausnarefni hvernig stjórnvöld og Alþingi vinna úr þeirri stöðu.“
Þetta er það sem skiptir máli í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Það er sjálfstætt úrlausnarefni hvernig við leysum úr þeirri stöðu. Það var ekki gefinn opinn víxill. Í framsöguræðu minni með álitinu og í umræðum um málið á þinginu tók ég fram að ég taldi skynsamlegt að leita pólitískrar lausnar á þessu máli vegna þess að á það átti að reyna á grundvelli sameiginlegu viðmiðanna hvernig viðsemjendur okkar væru tilbúnir til að axla með okkur ábyrgð á því að regluverk Evrópusambandsins brást. Það var ekki smíðað fyrir það áfall sem hér hafði dunið yfir. Ég taldi það betri kost en þann að láta þvinga fram dómsniðurstöðu um lagalega stöðu okkar vegna þess að þá værum við í reynd að taka áhættuna af því að tapa málinu með húð og hári.
En hver er svo samningsniðurstaðan sem fyrir okkur er borin? Hún er sambærileg við það að við hefðum tapað málinu með öllu. Öllum okkar dómkröfum hefði verið vísað til hliðar og fallist á dómkröfur viðsemjenda okkar vegna þess að ríkið er að taka fulla ábyrgð á öllum skuldbindingum innstæðutryggingarsjóðsins. Menn vísa í greiðsluhlé, menn vísa í að lánstíminn sé langur og menn vísa í að vextirnir séu ásættanlegir. En það er ekkert sem breytir því að ríkissjóður er ábyrgur fyrir allri fjárhæðinni og tölurnar sem við erum að fjalla um eru ótrúlegar. Þær eru svimandi háar og þær eru meira að segja langt umfram þær tölur sem kynntar voru utanríkismálanefnd og lesa má um í áliti meiri hluta nefndarinnar frá því fyrir áramót. Maður hlýtur því að spyrja sig, úr því að niðurstaðan varð þessi, úr því að ríkisstjórninni var ljóst að það var ekki um neitt að semja og viðsemjendur okkar ætluðu ekki að taka neitt tillit til okkar, hvort ekki væri meiri skynsemi — hvernig má það þá vera að það sé betra fyrir okkur að fallast á niðurstöðu í málinu sem er sambærileg við það að hafa tapað málið að fullu fyrir dómstólum? Jú, þeir segja við okkur að ella verðum við tekin aftur til október. Að ella verði Ísland Kúba norðursins og ella verðum við einangruð og afskekkt. Við fáum ekki lánafyrirgreiðslu á Norðurlöndunum, við fáum ekki fyrirgreiðslu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ég segi við þá sem eru með þennan málflutning: Það er hneisa fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ef lánsbeiðni frá okkur í þeirri aðstöðu sem við erum er tekin í gíslingu vegna óskyldra mála. Og það er meira áfall fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, tilvist hans og forsendur fyrir því sameiginlega átaki sem hann er. Forsendurnar eru allar í uppnámi ef stjórnarmenn í sjóðnum geta hagað sér með þessum hætti. Og ég segi líka að það er fullkomin hneisa fyrir Breta og Hollendinga ef þeir ætla að knýja fram með hótunum um að aftengja einstaka kafla EES-samstarfsins með því að beita okkur viðskiptaþvingunum, hryðjuverkalögum eða einangrun af þeim toga sem hæstv. viðskiptaráðherra telur að þeir munu gera eða hæstv. fjármálaráðherra segir að okkur verði stefnt í. Það er fullkomin hneisa vegna þess að málflutningur okkar byggir einfaldlega á því að við viljum standa við alþjóðlegar skuldbindingar okkar. Það er það eina sem við förum fram á, að úr því verði skorið hverjar þær eru í reynd. Er farið fram á mikið við viðsemjendur okkar að þetta sé fengið á hreint?
Hverjar eru kröfurnar sem Bretar og Hollendingar eiga? Gleymum því ekki. Þetta eru ekki kröfur bresku þjóðarinnar á íslensku þjóðina. Nei. Krafan er að stofni til krafa innstæðueigenda á Landsbankann sem breska ríkið ákvað að taka yfir. Breska ríkið öðlast ekki betri stöðu heldur bara nákvæmlega sömu stöðu og innstæðueigandinn átti á innstæðutryggingarsjóðinn á Íslandi. Hvar er varnarþing hans? Það er á Íslandi. Rísi upp ágreiningur um það hvernig eigi að fara með þetta mál þá liggur alveg fyrir hvar varnarþingið er. Það er það sama og hefur alltaf verið, hjá Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjármagnshafa, eða hvað það heitir, það er á Íslandi. Þangað geta menn sótt sinn rétt. Það sem við höfum hins vegar verið að gera er að við höfum verið að opna viðræður við þessa aðila um að dómsmálin verði rekin annars staðar.
Ég hef ekki tíma til að fara ofan í öll efnisatriði samningsins en það eru svo fjölmörg atriði í samningnum sjálfum sem eru fyrir utan þessa gagnrýni mína og væru tilefni til sérstakrar ræðu. Ég er t.d. með dæmigert svokallað „immunity-ákvæði“ úr svokölluðu MTN-prógrammi, sem er dæmigerður lánasamningur sem Seðlabankinn gerir. Þar er sérstaklega tilgreint að menn undanskilja eignir íslenska ríkisins, allar eignir utanríkisþjónustunnar og allar þær eignir sem eru nauðsynlegar fyrir rekstur íslenska ríkisins í þeim lánasamningi. Það var látið undir höfuð leggjast í þessu máli.
Alvarlegast af öllu er þó það að ekki skuli hafa verið tryggt að menn ættu mögulegan bótarétt innstæðueigendanna vegna þess að innstæðutryggingarkerfið brást. Það er ömurlegt að horfa á talsmenn ríkisstjórnarinnar í þessu máli koma hingað upp og verja allan málstað viðsemjenda okkar og eyðileggja þannig (Forseti hringir.) alla möguleika okkar á að halda uppi lagalegri stöðu okkar og rétti og ég ítreka: Það eina sem við erum að fara fram á í þessu máli er (Forseti hringir.) að skylda okkar til að gangast í ríkisábyrgð fyrir þessu sé skýr.