137. löggjafarþing — 33. fundur,  2. júlí 2009.

ríkisábyrgð á lántöku tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[12:39]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er nokkuð hugsi eftir þetta andsvar hv. þingmanns því að þeir ráðherrar hans flokks sem hann vísar til gáfu auðvitað út yfirlýsingar og létu undirrita skuldbindingar fyrir hönd íslensku þjóðarinnar á alþjóðavettvangi sem óhjákvæmilega hafa haft áhrif á stöðu þessa máls. Sú staða er auðvitað slæm. Þessi ákvörðun verður mjög erfið. En Sjálfstæðisflokkurinn átti með okkur öllum hinum ríkulegan þátt í því að skapa hana og ég undrast það að flokkurinn hlaupist svo frá ábyrgð sinni sem hann gerir nú, einkum og sér í lagi vegna þess að hv. þm. Bjarni Benediktsson veit að þegar hann var formaður utanríkismálanefndar Alþingis var hann ekki í neinum færum um að landa skárri samningi en hér liggur fyrir. Í desember var fjallað um að tjónið gæti orðið 2,8 milljarðar evra eins og við erum nú að horfast í augu við.

Það sem hann ekki sjálfur gat gert í desember (Forseti hringir.) álasar hann nú öðrum fyrir að ljúka og takast á hendur þá erfiðu ábyrgð að ljúka þeim málum (Forseti hringir.) sem Sjálfstæðisflokkurinn stofnaði til.