137. löggjafarþing — 33. fundur,  2. júlí 2009.

ríkisábyrgð á lántöku tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[14:31]
Horfa

Valgeir Skagfjörð (Bhr):

Virðulegi forseti. Það eru erfiðir tímar og má vera ögurstund í íslenskum stjórnmálum, ögurstund í sögu Íslands, ögurstund.

Hér er til umræðu samningur sem er ekki aðeins umdeildur heldur samningur sem felur í sér mögulega örlög þessarar þjóðar. Það hefur margoft komið fram í ræðu og riti að það er allri þjóðinni þvert um geð að samþykkja þennan nauðasamning sem gömlu nýlenduherrarnir úti í Evrópu hafa svínbeygt okkur til að undirrita. Það er líka á allra vitorði hérlendis sem erlendis að íslenska þjóðin hefur ekkert gert af sér sem réttlætir það að skrifað sé upp á bevís um að gera Íslendinga að þrælum í eigin landi. Það er ekkert sem réttlætir það að Íslendingar séu settir í nauðungarvinnu við að þrífa upp eftir gegndarlausa óráðsíu, ævintýramennsku og viðskiptadólgsskap sem fáeinir bankamenn og bisnessmenn, blindaðir af græðgi, hafa komist upp með.

En það er víst ekkert annað í stöðunni en að semja, leysa vandann með samningum. Við verðum að standa við það sem við segjum. Við verðum að standa við þær alþjóðlegu samþykktir sem við sem þjóð erum aðilar að. En þjóðin skrifaði ekki upp á þessa ábyrgð í upphafi. Ef mig misminnir ekki sagði fyrrum iðnaðar- og viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks á borgarafundi á Nasa orðrétt, með leyfi forseta: „Ég seldi bankana.“ Ég vek athygli á orðalaginu. „Ég seldi bankana.“ Bankarnir voru seldir og komust þar með í einkaeign þannig að það var banki í einkaeign sem fór á hausinn en á bak við stóð ríkisábyrgð. Ríkið ábyrgist og þegar menn tala um ríkið þá vita flestir við hvað er átt. Það erum við. Það er almenningur í þessu landi og nú skal ríkið ábyrgjast greiðslur af þeim lánum sem það neyðist nú til að taka og við borgum brúsann eins og venjulega.

Það vissu allir málsmetandi menn og konur í hvað stefndi löngu fyrir hrun en samt gekk maður undir manns hönd við að fegra ástandið og blekkja almenning og umheiminn með því að allt væri í stakasta lagi og svo fór sem fór og þá sögu ætla ég ekki að endurtaka. Hún er harmleikur sem aldrei má endurtaka sig.

Nú ber svo við að við stöndum helmingi verr að vígi en þegar lagt var af stað í einkavinavæðinguna á sínum tíma. Skuldir ríkissjóðs stefna í að verða 3.000 milljarðar og vaxtagreiðslur upp á rúmlega 130 milljarða. Þetta lítur ekki vel út. Ekki hjálpar okkur hin alþjóðlega kreppa sem er farin að gera vart við sig þessa daga og það merkilega er að við sáum sömu teikn á lofti fyrir þá kreppu sem skall á okkur, sömu teikn og voru á lofti fyrir kreppuna miklu 1930 og jafnvel blaðafyrirsagnir frá þeim tíma eru lygilega samhljóma þeim fyrirsögnum og upphrópunum sem við höfum lesið, séð og heyrt í fjölmiðlum síðustu missiri.

Höfum við þá ekkert lært? Nú hafa bæði kommúnisminn og nýfrjálshyggjan hrunið og við vitum að hið kapítalíska samfélag sem þróaðist frá iðnbyltingunni hefur ávallt leitt af sér hrun, kreppu, atvinnuleysi og att þjóðum að lokum út í styrjaldir. Það er eins og ófrávíkjanlegt lögmál, eins og lögmálin meðal dýranna, þegar of margir koma að vatnsbólinu. Þá þrengir að og þeir sem ekki komast að lindunum verða öfundsjúkir, fyllast réttlætiskennd og það sem þeir ekki fá taka þeir með valdi ef ekki vill betur og hinir verjast með kjafti og klóm. Og þá verður aftur hagvöxtur.

Miðar okkur ekkert áfram? 10% jarðarbúa eiga 90% af auði jarðar. Segir það kannski ekki alla söguna? Hvar er réttlætið? Réttlætið er sjaldnast nokkuð sem hægt er að ganga að sem gefnu. Réttlætið hefur mjög undarlega tilhneigingu til að standa ekki með þeim sem þurfa á því að halda. Hinn smái hefur alltaf þurft að berjast fyrir réttlætinu með sínu blóði, svita og tárum.

Frú forseti. Það setur að mér hroll. Það setur að mér beyg. Ég bauð mig fram til setu á hinu háa Alþingi fyrir síðustu kosningar vegna þess að mér blöskraði svo gjörsamlega hvernig komið var fyrir þjóðinni. Mér var öllum lokið yfir því misrétti og þeirri framkomu sem almenningi í þessu landi hefur verið sýndur á undanförnum árum. Mig langaði einfaldlega til að gera gagn. Mig langaði til að verða meðbræðrum mínum að gagni. Mig langaði að gera þjóðinni gagn. Er það ekki hlutverk þjóðkjörinna fulltrúa að vinna þjóðinni gagn í umboði kjósenda sinna? Ég lít svo á. Ég lít að minnsta kosti svo á að það sé mitt hlutverk hér. Ég er bundinn af sannfæringu minni þegar ég tek upplýsta ákvörðun um mál sem snerta þjóðina, sannfæringu minni. Ég reyni að hafa dómgreind sjálfs mín að leiðbeinanda en ekki flokksins. Hollusta mín og sannfæring er hjá sjálfum mér og gagnvart þjóðinni og það er sá eiðstafur sem ég kvittaði fyrir þegar ég hóf hér störf.

Þessi samningur sem kenndur er við Icesave er á góðri leið með að kljúfa þjóðina í herðar niður og sýnist sitt hverjum um hvort við eigum að láta möglunarlaust troða honum ofan um kokið á okkur eða hvort við eigum að malda í móinn og freista þess að fá nýjan samning, hugsanlega eitthvað betri þótt ekki væri nema sýnt þyki að verði hægt að standa við hann.

Ég vil leyfa mér, frú forseti, að halda því fram að þessi samningur sé innihaldslega og frá lögfræðilegum sjónarhóli ekkert ýkja frábrugðinn venjulegum samningum eins og aðilar gera í viðskiptum sín á milli. Það blandast engum hugur um að hér er um samning að ræða þar sem hallar meira á annan aðilann heldur en hinn. Fyrir kemur að þeir sem standa í slíkum samningum semji af sér. Það er mannlegt að gera slík mistök.

En þessi samningur snýst ekki bara um þær fjárskuldbindingar sem hann tekur til. Nei, hann er annað og meira. Hann er táknrænn. Hann er táknrænn í þeim skilningi að með samþykkt eða synjun mun eitthvað losna úr læðingi vegna þess að hann snertir þá framtíð sem landstjórinn, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, hefur mótað handa Íslendingum. Við erum föst í greip landstjórans og hann herðir að smátt og smátt þar til mátturinn þverr og þar með þrekið, baráttuviljinn, lífsþorstinn og við tekur slen og óminni sem gerir okkur sinnulaus og sljó. Þegar þjóð er hneppt í ánauð glatar hún vilja sínum til að vinna verkin vel og hún gerir það vegna þess að hún er pískuð áfram til þess. Hún verður. Hún hefur ekki val. Okkur hefur verið tjáð að erfiðir tímar séu fram undan. Það veit hver maður. Það á að hækka skatta á almenning. Það á að hækka skatta á fyrirtæki, troða á öryrkjum og ellilífeyrisþegum og svo heldur niðurskurðarhnífurinn áfram og þetta verður kallað nauðsynlegur sparnaður í ríkisrekstrinum. Heilbrigðisþjónustan versnar. Menntakerfið laskast. Þetta eru alþekktar aðferðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og það er slóðin eftir hann. Saga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er ekki áferðarfalleg. En þeir segja að nú sé allt breytt, að Ísland sé vestrænt velferðarríki og við fáum annars konar meðferð. Hvað er að gerast í okkar ágæta landi?

Virðulegi forseti. Mögulegar skuldir ríkissjóðs og þjóðarbúsins í heild stefna okkur hraðbyri í átt að gjaldþroti og það er bara það sem gerist þegar skuldirnar verða of miklar til að hægt sé að greiða þær. Fyrirtækin stefna í gjaldþrot eitt af öðru. Heimilin stefna í gjaldþrot eitt af öðru og hvernig dettur mönnum í hug að það sé hægt lækna allt með þessum endalausu lántökum? Er Ísland að verða eins og fíkill sem vill bara fá fixið sitt til að geta haldið áfram á sömu braut? Að rétta fíklinum pening tryggir það að hann haldi neyslunni áfram. Eina von hans er að gefast upp vegna þess að hann er andlega, líkamlega og fjárhagslega gjaldþrota. En í því er nefnilega sigurinn fólginn. Það er engin skömm að því að gefast upp í vanmættinum. Þar liggur fyrsta skrefið í átt að lausninni og það er ekki einu sinni flótti frá vandamálinu. Gamalt enskt máltæki hljóðar svo: Sá sem flýr getur barist síðar. Það ber vott um góða hernaðarlist að í stað þess að flýja er gripið til þess sem kallað er skipulegt undanhald. Kannski er farsæl lausn fyrir Ísland að fara í skipulegt gjaldþrotaundanhald. Hver veit. Það sér hver maður að skuldirnar eru að verða okkur ofviða. Eins og ástandið er og miðað við framtíðarhorfur með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í landstjóraembættinu, þrælapískinn frá Bretum og Hollendingum yfir okkur og flestar þjóðir innan ESB, þar með talið frændur okkar á Norðurlöndunum — þeir eru á því að það sé bara best að rétta okkur snæri til að lengja í hengingarólinni og setja okkur í þannig yfirgengilegar skuldir að við ráðum engan veginn við þær og þá kemur Evrópusambandið og bjargar okkur. Og hver verður þá díllinn? Verða þá 3.000 milljarðarnir skiptimyntin í samningaviðræðum Íslands og ESB? Ætla þeir þá að skera okkur niður úr snörunni í skiptum fyrir fjöllin og firnindin, fallvötnin, fiskinn í sjónum, réttindin til olíuborunar á Drekasvæðinu, nýtingu á siglingaleiðinni hérna norður fyrir? Heldur einhver að þeir sem hafa stjórnað heimsveldum í áranna rás og rekið nýlendur hinum megin á jarðarkringlunni séu að tjalda til einnar nætur?

Eitt verð ég að segja þér áður en ég dey,

enda skalt þú börnum þínum kenna fræði mín,

sögðu mér það álfarnir í Suðurey,

sögðu mér það dvergarnir í Norðurey,

sögðu mér það gullinmura og gleymmérey

og gleymdu því ei:

að hefnist þeim er svíkur sína huldumey,

honum verður erfiður dauðinn.

Ég veit að ég er ekki með neinar bjartsýnisspár hérna. En stundum þarf maður að standa sannleikanum reikningsskil.

Okkur hefur verið sagt að ef ekki verði gengið að afarkostum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og allra hinna þá verðum við Kúba norðursins, jafnvel Norður-Kórea norðursins. Hvílík ógn og skelfing. Það er kannski bara betra að vera Kúba norðursins og vera þá frjáls en að vera nýlenda og þurfa að éta úr lófa lénsherranna úti í Evrópu. Á meðan við erum frjáls eru enn líkur á því að við höldum auðlindunum í okkar eigu og þá getum við hafið sókn í átt til sjálfbærni og nýtt þau tækifæri sem hér eru til staðar fyrir okkur sjálf. Sjálfsagt hugsa margir að við hljómum eins og dæmigerð stjórnarandstaða, að við séum bara á móti öllu og komum ekki með neitt í staðinn.

Það skal tekið fram að við í Borgarahreyfingunni erum ekki í liði með neinum. Við erum ekkert sérstaklega einhver stjórnarandstaða. Við styðjum margt sem stjórnin gerir og það er margt gott sem hinir flokkarnir hafa lagt til. En við stöndum fyrst og síðast okkur sjálfum reikningsskil, okkur og sannfæringu okkar.

Borgarahreyfingin hyggst á næstu dögum, þegar Icesave-málið fer fyrir nefndir þingsins, róa að því öllum árum að koma með einhvers konar útlínur að plani B. Við ætlum að leggja fram ítarlegar hugmyndir um hvernig við komum okkur út úr þeim vanda sem við erum í. En til þess þurfum við að vera tilbúin til að hlusta á óvenjulegar hugmyndir, frumlegar lausnir því Ísland hefur aldrei áður staðið frammi fyrir svona aðstæðum áður, aðstæðum sem hvaða þjóð sem er yrði nánast ofviða ef erfiðleikarnir sem steðjuðu að væru í viðlíka hlutfalli við okkar. Það skal einnig tekið fram að Borgarahreyfingin er ekki á nokkurn hátt að leggja það til að við semjum ekki um skuldir okkar. En um leið viljum við leggja allt kapp á að þeir verði dregnir til ábyrgðar sem eiga sök á því hvernig fór. Við viljum láta skerpa á rannsókninni. Þess má geta í framhjáhlaupi að til er stofnun í Englandi sem heitir Serious Fraud Office sem tekur á stórum svika- og glæpamálum. Í fyrradag tilkynnti þessi stofnun að hún hefði fryst 100 milljónir bandaríkjadala á ýmsum bankareikningum sem tengdust auðmanni sem sakaður er um að hafa dregið að sér sem svarar 900 milljörðum kr. Það liðu fimm klukkustundir frá því að stofnunin fékk beiðni frá bandarískum yfirvöldum þar til hún hafði fryst þá fjármuni sem vitað var að tengdust þessum manni.

Það eru liðnir átta mánuðir frá hruninu hér og engir fjármunir hafa verið frystir. Hvernig væri að hringja eitt símtal í Serious Fraud Office í Englandi? Það er með hreinum ólíkindum hvað gunguhátturinn virðist mikill gagnvart þessari rannsókn. Ríkisstjórnin skuldar þjóðinni það að láta rannsaka allt sem viðkemur hruninu og rannsóknin þarf helst að fara fram fyrir opnum tjöldum. Þeir sem komu okkur á kaldan klaka með ábyrgðarlausu framferði sínu eiga að borga reikninginn, ekki almenningur. Það verður að vera á hreinu. Ef meiningin er að láta þetta lönd og leið, láta bara almenning blæða og vonast til að allt reddist þegar við förum inn í ESB þá eru menn á villigötum. Þjóðin þarf sannleikann upp á borð. Icesave er bara byrjunin. Nú þurfa þingmenn að sýna kjark. Nú þurfa þingmenn að leggjast undir feld á eintal við eigin samvisku.

Nöfn þeirra sem vilja selja landið og miðin munu verða meitluð í stein á meðan eitthvað dregur lífsanda í þessu landi. Þennan samning verður að fella.