ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Af því að við vorum að tala um svart/hvítt þá held ég að við FH-ingar getum átt í góðum samræðum og málefnalegum umræðum við KR-inga. Ég held að það sé nokkuð ljóst. Mér finnst engu að síður gæta hér ákveðinnar tortryggni. Hér hefur verið rekin svona tortryggnispólitík, óvissupólitík, hræðslupólitík sérstaklega af hálfu hæstv. fjármálaráðherra í þessu máli öllu og við þurfum að draga það fram.
Ég er sannfærð um að heimurinn muni ekki hrynja yfir okkur og það verði lok, lok og læs þó að við höfnum þessum samningi. Ég held að við eigum að fara mjög vel yfir þetta í nefndunum, skoða hvað hægt sé að gera til þess að breyta þeim samningsforsendum sem eru til staðar. Ef það er ekki hægt þá er ekkert annað eftir en að fella þennan samning því að hann er ólíðandi eins og hann er lagður fyrir.