137. löggjafarþing — 33. fundur,  2. júlí 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[17:28]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég er næstur á mælendaskrá. Ég vil bara vekja athygli á því að hæstv. forsætisráðherra er ekki hér í salnum. Ég óska eftir því að hún verði kölluð í salinn. Ég ætlaði að beina að henni spurningum. Ég held að það sé mjög mikilvægt í ljósi stærðargráðu þess máls sem við erum hér að fjalla um að hún sé hér.

Einnig óska ég eftir því að hæstv. utanríkisráðherra komi og verði viðstaddur umræðuna í framhaldinu. Hann fer með utanríkismálin og að honum munu þessir samningar snúa í framtíðinni.