ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á því að vera bindislaus í ræðustól, mér finnst þetta algjör óhæfa, ég bara gleymdi því.
Það er rétt sem hæstv. fjármálaráðherra segir, tilvist þessa bréfs hefur örugglega verið mjög erfið og mjög vond, og ég er sammála honum með að það hefur verið mjög óheppilegt að hafa þetta bréf hangandi yfir sér. Bréfið er hins vegar vitanlega ekki aðalmálið og ég lít svo á að það hafi ekki bundið hendur okkar til að gera þennan samning frekar en einhvern annan samning.
Það er eitt sem við verðum líka að hafa í huga. Við höfum gjarnan rætt hér um erfiða samningsstöðu okkar vegna þess að okkur vanti fjármuni, sem er alveg rétt, en hverjir vilja fá þessa peninga okkar? Samningsstaða okkar er mjög sterk líka vegna þess að Hollendingar og Bretar vilja vitanlega fá þessi hundruð milljarða. Við erum búnir að lýsa því yfir og búnir að tala hér, margir þingmenn, um að reynist það vera þannig að við eigum að borga þetta borgum við þetta að sjálfsögðu, en við eigum ekki að borga það með einhverjum afarkjörum. Samningsstaða okkar í þessu máli er þar af leiðandi mjög sterk því að þó að þetta séu stórar þjóðir munar þær um 600–700 milljarða. Við eigum ekki að vera í þeirri stöðu að þurfa að sætta okkur við þann samning sem hér er og þau kjör sem á honum eru og þá afarkosti sem í honum eru vegna þess að við höfum alltaf þetta tromp að þeir vilja fjármuni okkar, þeir vilja peningana okkar. Okkur hér á Alþingi ber núna skylda til þess að reyna að koma því í þann farveg að við getum gert þennan samning betri en hann er — því að ég tel hann óásættanlegan.