137. löggjafarþing — 33. fundur,  2. júlí 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[21:41]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hér hafa verið ýmsar kenningar um hvað hafi orðið um Samfylkinguna, það hafa ekki fengist svör við því enn þá. Ég velti því fyrir mér hvort þingflokkur Samfylkingarinnar sé e.t.v. upptekinn við það sem þykir yfirleitt einkenna þann flokk, í spunaverinu ýmist að blogga eða að leka einhverju í fréttamenn sína eins og ótrúleg frétt Stöðvar 2 í kvöld bar vitni um.

Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Áhrifamaður innan Vinstri grænna segir að ef þingmenn flokksins verði til þess að fella Icesave-samkomulagið sé ríkisstjórnin sprungin og spurning hvort flokkurinn sé búinn að vera pólitískt.“

Hvers lags endemis vitleysa er þetta, hæstv. forseti? Ég mundi miklu frekar telja að flokkurinn væri búinn að vera pólitískt ef hann staðfesti Icesave-samkomulagið þannig að sá spuni sem Samfylkingin virðist einbeita sér að í kvöld og þá væntanlega líka næstu daga er algjörlega ólíðandi. Ég held að þeir ættu frekar að láta sjá sig hér í þingsal og ræða málið.