137. löggjafarþing — 33. fundur,  2. júlí 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[22:09]
Horfa

Forseti (Steinunn Valdís Óskarsdóttir):

Forseti vill benda hv. þingmönnum á að forseta urðu á mistök fyrr í kvöld þegar forseti gat þess að samkomulag hefði orðið um að ljúka fundi kl. 10. Samkomulagið var um að ljúka fundi kl. 11 enda var sendur út tölvupóstur um það þar að lútandi fyrr í kvöld til formanna allra þingflokka og starfsmanna þingsins.