137. löggjafarþing — 34. fundur,  3. júlí 2009.

gjaldeyrismál.

137. mál
[11:41]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég fagna þessum orðum ráðherrans og ég tel að í þessu lagafrumvarpi megi sjá ákveðna breytingu á afstöðu framkvæmdarvaldsins með því að hér er lagt til að Fjármálaeftirlitið fái heimild til kyrrsetningar. Ég fagna sérstaklega þeim orðum hæstv. ráðherra að það komi til álita að veita Fjármálaeftirlitinu víðtækari heimildir á borð við þessa.