137. löggjafarþing — 34. fundur,  3. júlí 2009.

embætti sérstaks saksóknara og rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.

138. mál
[12:23]
Horfa

Valgeir Skagfjörð (Bhr) (andsvar):

Virðulegi forseti. Enn og aftur prísa ég frumvarpið. Það er gríðarlegur mannafli sem þarf í þetta verkefni eins og hæstv. dómsmálaráðherra nefndi og hún tíndi til fjölda starfsfólks. Fjöldinn allur af fólki sem starfaði innan fjármálafyrirtækjanna er núna atvinnulaus og eftir því sem ég kemst næst hafa 40% af þeim hópi fengið vinnu sem þýðir að enn eru 60% atvinnulaus. Innan þessa hóps finnast alls konar sérfræðingar og fólk með þekkingu og upplýsingar sem eru hugsanlega nýtilegar í þessari rannsókn. Ég veit ekki hvernig rannsóknin stendur. Það hefur ekki verið mikill fréttaflutningur af rannsókninni sem slíkri nema ein og ein yfirlýsing þannig að ég spyr: Er hægt að nýta þá þekkingu og þær upplýsingar sem liggja hjá þessu fólki til að aðstoða þá sem vinna í rannsóknarnefndinni?