ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og get tekið undir margt af því sem kom fram í máli hennar. Hún nefnir að stundaður sé hræðsluáróður á hinu háa Alþingi til að koma samningnum í gegn, þegar hæstv. forsætisráðherra hefur verið spurð að því í fjölmiðlum hvort hún hafi eitthvert plan B verði samningurinn ekki samþykktur á Alþingi, telur hv. þingmaður að það sé þá hluti af þessum hræðsluáróðri sem stundaður er á Alþingi Íslendinga?
Eins varðandi það sem kemur fram í máli hv. þingmanns, að Bretar hafi hótað að standa í vegi fyrir aðildarumsókn að Evrópusambandinu, vil ég spyrja hv. þingmann hvort hún telji að Samfylkingin sé hugsanlega tilbúin að kokgleypa allt án þess að mögla nokkuð.
Hv. þingmaður kom líka inn á forsendubrest samningsins sem ég tek undir. Það er mjög sérkennilegt, eins og hefur komið fram í máli hv. þingmanna, að við skulum samþykkja samning sem þegar eru brostnar forsendur fyrir. En það kom mjög skýrt fram í máli hæstv. félagsmálaráðherra í gær að það væri mjög mikilvægt að skrifa undir samninginn vegna þess að hann væri brostinn, þá gætum við tekið hann upp aftur. Þannig er öll samningatæknin. Það kom fram í gær, það er mjög sérkennilegt.
Hv. þingmaður kom jafnframt inn á aðild Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Mig langar því að velta því upp hvort hv. þingmaður taki undir áhyggjur mínar varðandi það að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé hugsanlega ekki hér til að hjálpa okkur upp úr þessum erfiðleikum heldur eingöngu til að komast yfir auðlindir Íslendinga. Það sé í raun og veru ætlunarverk hans.
Síðan tek ég undir áhyggjur hv. þingmanns af miklum skuldum þjóðarbúsins. Telur hv. þingmaður að við komumst einhvern tíma út úr þessu ef við samþykkjum þennan samning og velferðarkerfið verður skorið niður við trog?