ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég hef kannski beint til hennar of mörgum spurningum þannig að ég kem með þær þá að hluta aftur.
Mig langar líka að velta því upp við hv. þingmann hvað henni finnist um þá kynningu sem átti sér stað þegar formaður samninganefndar Íslendinga kom hér og hélt fundi með þingflokkum á þessum afdrifaríka föstudegi. Þá var það gert hjá okkur þannig að hann kom inn í stuttan tíma. Ég hef grun um að hann hafi gert það líka hjá stjórnarflokkunum með þeim hætti. Síðan er skrifað undir samninginn um kvöldið eða nóttina. Hvað finnst henni um þau vinnubrögð að kynningin fari fram með þessum hætti fyrir hv. þingmenn sem standa að stjórnarflokkunum? Deilir hún ekki þeim áhyggjum með mér að þeir hafi ekki fengið þær upplýsingar og eins þá góðu kynningu sem þeir þyrftu að fá áður en þetta verði gert, áður en þeir skrifa undir?