137. löggjafarþing — 34. fundur,  3. júlí 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[15:25]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður má auðvitað sanna það með spurningum af þessu tagi að hann les ekki einu sinni gögn sem hann hefur á borði sínu sem þingmaður. Í fylgiskjali með skýrslu um efnahagsmál eru sundurliðaðar skuldir ríkissjóðs. (BJJ: Vantar ekki inn í það?) Nei, þær skuldir liggja jafnframt fyrir. (BJJ: Nú.) Það liggur fyrir og samkvæmt bókfærsluvenjum er á ríkissjóði sjálfum áætlað um 650 milljarðar kr. í erlendum skuldum í árslok. (Gripið fram í.) Nei. Og það er sérstaklega tilgreint í skjalinu að þar standi utan við tilgreindar erlendar skuldir sem eru hjá Seðlabankanum. Það er ekki bókhaldsbrella. Það er ekki verið að reyna að fela neitt, þetta eru hefðbundin skýringargögn. En þetta er ótrúlegur málflutningur hjá hv. þingmönnum. Þeir væla og veina undan því að þeir hafi ekki upplýsingar þegar þeim eru sýndar þær. (BJJ: Þær liggja ekki fyrir.) Og þegar þær liggja fyrir skjalfestar á Alþingi (BJJ: Farðu einu sinni með rétt mál.) þá er það bara ekki nógu gott. Þá er þetta einhvern veginn öðruvísi. (BJJ : Já, brostu bara.) Þetta er nákvæmlega svona. Bestu fáanlegar upplýsingar um erlendar skuldir ríkisins voru teknar saman í júníbyrjun og settar inn í fylgiskjal með skýrslu um aðgerðir í stöðugleika í ríkisfjármálum.