fundarhlé vegna nefndarfundar.
Frú forseti. Ég get ekki annað en haft gaman af þeim öfugmælavísum sem hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson fór með áðan. Auðvitað gengur ekki sú fundarstjórn sem hér var lagt upp með, að haft sé samband við forseta vegna þess að það geti verið að það standi yfir fundur í utanríkismálanefnd, fundur sem stóð ekki yfir. Hið eðlilega í þessu máli hefði auðvitað verið að við hefðum hafið störf, unnið að þeim málum sem liggja fyrir. Síðan hefði hv. utanríkismálanefnd hafið sinn fund þegar hún var tilbúin til þess, fundað þann tíma sem hún þurfti í samvinnu og samstarfi við aðra þingflokka þannig að við gætum haft einhvern eðlilegan brag á þessu og þinginu væri ekki stjórnað með þessum hætti. Það lá ekki einu sinni fyrir að nefndin væri á fundi, hún var ekki á fundi og það hafði ekki verið boðað til fundar þegar ákveðið var að blása af þingfund. (Forseti hringir.) Við eigum að nota tímann vel og við eigum ekki að haga okkur með þessum hætti við stjórn þingsins.