137. löggjafarþing — 36. fundur,  9. júlí 2009.

tilhögun þingfundar.

[12:10]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum um fundarstjórn forseta og þá miklu klemmu sem hæstv. forseti er í við að stýra þinginu undir þeim þrýstingi sem er til staðar frá Samfylkingunni út af ESB-málinu. Það mál verður til umfjöllunar og væntanlega á dagskrá þingsins á morgun.

Vegna þeirra orða sem hafa fallið um afgreiðslu utanríkismálanefndar þá get ég auðvitað ekki setið á mér að benda á að í reynd er utanríkismálanefnd klofin í fimm ólíka parta vegna þess að fyrirvararnir tveir við álit meiri hlutans eru efnislega samhljóða því sem minni hlutinn vill í því máli. Menn geta litið svo á að það sé bara stjórnarandstaðan sem er klofin. Það er auðvitað ekkert óeðlilegt að þar komi sitt hvort nefndarálitið. En það sem mestu máli skiptir er hvernig ríkisstjórnin heldur á þessu máli, hún er hvorki innbyrðis sammála né hefur henni tekist að skapa þá breiðu samstöðu í þinginu sem lagt var upp með í upphafi. (Forseti hringir.) Við hljótum öll að geta verið sammála um að það er alger grundvallarforsenda þess að tekin séu stór skref í ESB-málinu á næstu dögum eða mánuðum.