fundarhlé vegna nefndarfundar.
Frú forseti. Ég ætla að árétta það að formaður utanríkismálanefndar hefur staðið sig með ágætum í allri meðferð málsins, ESB-málsins, á fundum utanríkismálanefndar, í rauninni þar til í morgun þar sem m.a. við þingmenn stjórnarandstöðu óskuðum eftir því að betur yrði farið yfir umsagnir, betur yrði farið yfir álit sem lá fyrir af hálfu meiri hluta utanríkismálanefndar en það var ekki orðið við því og málið var einfaldlega tekið út úr nefnd.
Ég ætla aðeins að fara yfir atburðarás morgunsins. Það var fundað í utanríkismálanefnd kl. 8.30. Fundi var frestað kl. 9.15. Af hverju var það? Það var út af því að stjórnarmeirihlutinn var í uppnámi, af því að einn þingmaður Vinstri grænna var að fara eftir samvisku sinni í gær og boðaði síðan í dag fyrirvara og það er mjög skiljanlegur fyrirvari. En málið var í uppnámi og það var gert hlé á fundum utanríkismálanefndar frá kl. 9.15 til kl. 10 af því að stjórnarmeirihlutinn ætlaði að möndla með sér meirihlutaáliti. Þannig er það. Það var aldrei boðað til annars fundar fyrir hádegi í utanríkismálanefnd, hann var ekki boðaður fyrr en kl. 19 í kvöld, um kvöldmatarleytið. Hann var síðan boðaður rétt fyrir kl. 11 með símtali til okkar í stjórnarandstöðunni.