137. löggjafarþing — 36. fundur,  9. júlí 2009.

fundarhlé vegna nefndarfundar.

[12:21]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég hef fulla samúð með virðulegum forseta, að hún vilji koma dagskránni af stað. En það er mikilvægt að ræða þetta vegna þess að þingstörfin hafa hreinlega verið í algeru rugli, svo ég leyfi mér að nota það orð, upp á síðkastið, nefndardagar færðir til hingað og þangað og nú sé ég einmitt að einn virðulegur hv. þingmaður úr viðskiptanefnd var að koma. Það var einmitt það sem ég ætlaði að ræða vegna þess að það er ekki bara verið að hringla til með fundartíma í utanríkismálanefnd heldur var það upplýst á fundi viðskiptanefndar sem stendur væntanlega enn, sem átti að vera kl. 13.00 í hádegishléi en út af öllu þessu uppnámi í stjórnarmeirihlutanum vegna ESB-málsins var hann færður til kl. 11.30 og hv. formaður nefndarinnar upplýsti að hún hefði leyfi frú forseta til að halda þeim fundi áfram, fram yfir að þingfundur hæfist. Þetta gerði það að verkum að þingmenn í viðskiptanefnd sem hefðu gjarnan viljað taka þátt í þessari umræðu geta það ekki (Gripið fram í.) og þetta var ekki þannig mál að það mætti ekki bíða. Mér finnst þetta vera óþægilegt, frú forseti, og því ekki hægt að haga þingstörfum þannig að við vitum að hverju við göngum.