endurskipulagning rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja.
Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Pétri H. Blöndal hvað varðar afstöðu hans til þessarar breytingartillögu. Ég hefði kosið að við hefðum verið búin að komast að niðurstöðu í umræðu um Bankasýsluna þannig að það væri gerlegt fyrir þingmenn að taka afstöðu til þessa máls. Verði þessi tillaga samþykkt erum við að veita fjármálaráðherra opinn tékka til að fara með þetta félag inn í þessa Bankasýslu. Á meðan við höfum ekki gert okkur fullkomlega grein fyrir því hvernig Bankasýslan muni líta út er ógjörningur að mínu mati að greiða atkvæði með þessari tillögu og verði hún samþykkt þá með frumvarpinu öllu. Ég mun því sitja hjá.