endurskipulagning rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja.
Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni afar mikilvægt mál. Þetta mál snýst annars vegar um það að hjálpa til við endurskipulagningu fyrirtækja sem eru rekstrarhæf en hafa orðið illa úti með efnahagsreikning sinn í hruninu. En þetta mál snýst líka um að endurnýja og undirbyggja það traust sem þarf í íslensku efnahagslífi og sérstaklega fjármálalífi. Mér finnst eins og stjórnarliðar sumir hverjir skilji ekki þennan tilgang. Þetta kemur mjög vel fram í Bankasýslunni sem er framhald af þessu máli þar sem menn skilja einfaldlega ekki út af hverju verið sé að setja upp Bankasýsluna. Þetta er þekkt módel erlendis frá og menn ætla að sérsníða það að einhverjum íslenskum hugmyndum. (Forseti hringir.) Ég ætla að styðja málið, segi já, en þó með þeim annmörkum sem eru á því.