137. löggjafarþing — 38. fundur,  10. júlí 2009.

breytingartillaga og umræða um ESB.

[12:12]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Bhr):

Frú forseti. Hv. þm. Ásmundur Daðason sýndi hetjuskap fyrr í dag. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég verð vitni að svo miklum þrýstingi á þingmenn stjórnarflokkanna að það er bara til eitt orð um hann, kúgun. Ég vil sýna hv. þm. Ásmundi Daðasyni samstöðu og mun ekki taka þátt í umræðunni hér í dag.