137. löggjafarþing — 38. fundur,  10. júlí 2009.

aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

38. mál
[17:59]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er að sjálfsögðu gild spurning. En ráð er fyrir því gert að hagsmunaaðilar eigi auðvitað greiðan aðgang að því að fylgjast með samningaviðræðunum, í öðru lagi að sjálfsögðu Alþingi sem er ætlað mikið hlutverk í þeim efnum og svo að sjálfsögðu þau stjórnvöld sem bera ábyrgð á samningsforsvarinu. Þessir aðilar til samans mundu væntanlega allir koma að því að meta framvindu viðræðna og hvað væri að nást í þeim eða öllu heldur kannski ekki nást í slíku tilviki. Auðvitað gæti komið upp ágreiningur um að meta framhaldið. Það er augljóst mál. Það gætu orðið skiptar skoðanir um það hvort það væri fullreynt og menn ættu að hætta eða hvort það ætti að reyna að halda áfram. En það er nokkuð sem menn verða þá að takast á við eins og gengur, mundu væntanlega gera það á upplýstan og lýðræðislegan hátt.