137. löggjafarþing — 38. fundur,  10. júlí 2009.

aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

38. mál
[18:43]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst hæstv. ráðherra ætlast til býsna mikils þegar hann vill að ég svari fyrir aðra þingmenn. En eins og hann veit líklega manna best eftir góð kynni við framsóknarmenn að þá eru þeir mjög heiðarlegt fólk sem tekur mið af því sem þjóðin óskar hverju sinni og vinnur fyrir sína þjóð og ber hag hennar fyrir brjósti. Ég treysti mér ekki til að svara þessu að öðru leyti, hæstv. ráðherra.