137. löggjafarþing — 38. fundur,  10. júlí 2009.

aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

38. mál
[18:45]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Vegna þessarar fyrirspurnar um fundarstjórn forseta og þeirra upplýsinga sem komu fram hér hjá hv. þingmanni þá vil ég upplýsa að á fundi forseta og þingflokksformanna var þetta rætt. Því skal haldið til haga að við þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar, í það minnsta við hv. þm. Illugi Gunnarsson, mótmæltum því að fundað yrði hér á laugardag þar sem við teldum að þetta mál væri þannig vaxið og væri í eðlilegum farvegi og ætti því að koma á mánudaginn hér á dagskrá eins og önnur venjuleg mál. Ég man ekki klukkan þetta var. Það var um hálffjögur eða eitthvað slíkt sem þetta kom fram (REÁ: Eftir að …) svo því sé haldið til haga, hálffjögur.