137. löggjafarþing — 43. fundur,  14. júlí 2009.

álit Seðlabankans um Icesave o.fl.

[13:58]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Ég vil taka undir orð síðasta ræðumanns, hv. þm. Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þó að ég geri kannski ekki orð hennar um bombur að mínum. Spurning hennar er auðvitað eðlileg í ljósi þessara fáheyrðu ummæla hv. formanns utanríkismálanefndar sem virðist hafa farið gjörsamlega á taugum í þessu máli. Hann virðist hafa farið gjörsamlega á taugum þegar hann áttar sig á því að það stendur ekki steinn yfir steini í málatilbúnaði ríkisstjórnarinnar í þessu máli. Það stendur ekki steinn yfir steini, það er alltaf að koma betur og betur í ljós og hv. þm. Árni Þór Sigurðsson hefur einfaldlega farið á taugum þegar hann áttar sig á því hve vondan málstað hann hefur í höndunum.

Ég held að umræðan um blekkingar sem hann væntanlega vill meina að starfsmenn Seðlabankans hafi haft í frammi með því að koma á einhvern hátt fram undir fölsku flaggi. Það er ekki hægt að skilja ummæli hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar öðruvísi en að hann hafi miklar áhyggjur af þeim blekkingum sem þingnefnd er beitt í þessu sambandi.

Þá væri ágætt ef hv. þm. Árni Þór Sigurðsson hefði sömu áhyggjur af því þegar jafnvel ráðherrar í ríkisstjórninni verða berir að því að beita þingið ítrekað blekkingum í sambandi við Icesave-málið. Við höfum ekki tíma til að fara nánar yfir það núna en ég er tilbúinn í þær umræður. Ég er tilbúinn í að taka umræður t.d. um ýmis ummæli hæstv. fjármálaráðherra sem í ljós hefur komið að voru a.m.k. efnislega röng. Hvort þau voru vísvitandi röng veit ég ekki, en efnislega röng svör sem hann hefur gefið hér við fyrirspurnum ítrekað fyrir utan misvísandi ummæli fjármálaráðherra og forsætisráðherra í þessu máli sem ber þess merki á hvers konar brauðfótum (Forseti hringir.) allur þessi málflutningur er byggður.