137. löggjafarþing — 44. fundur,  15. júlí 2009.

aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

38. mál
[18:08]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Upplýst hefur verið af hálfu hæstv. ráðherra að Vinstri grænir álykti um ýmis mál en hins vegar virðist ekkert vera að marka þær ályktanir, miðað við að hreyfingin er tilbúin að selja stefnu sína fyrir aðgöngumiða að ríkisstjórn.

Hæstv. ráðherra hefur verið tíðrætt um lýðræði og þess vegna skil ég ekki hvers vegna hæstv. ráðherra kýs ekki að styðja tvöfalda atkvæðagreiðslu um málið. Hvers vegna má þjóðin ekki kjósa um að farið verði í þessa vegferð, fyrst ríkisstjórnarflokkarnir geta ekki verið sammála um að fara til Brussel? Hvers vegna er ekki sótt umboð til þjóðarinnar svo að þeir sem fara til Brussel á vegum Íslands standi ekki þar eins og hengilmænur með ekkert umboð heldur hafi umboð þjóðarinnar, ef þjóðin hefur einhvern áhuga á þessari vegferð, sem ég leyfi mér að efast um. Hvers vegna styður ráðherrann ekki breytingartillögu Bjarna Benediktssonar og Þorgerðar K. Gunnarsdóttur? Gæti það verið vegna þess að hún er lögð fram af sjálfstæðismönnum og hæstv. ráðherra virðist ekki styðja neitt sem frá þeim flokki kemur?