aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson segir að það sé eitthvert samhengi á milli ESB og Icesave-samninganna. Ég hafna því algerlega. Það hefur margítrekað komið fram einmitt hjá hagsmunaaðilum sem helst berjast fyrir inngöngu Íslendinga í Evrópusambandið svo sem eins og Samtökum iðnaðarins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar — og svo get ég lengi haldið áfram að telja einhverja úr baklandi Sjálfstæðisflokksins — þeir segja einmitt að það hafi skaðað Evrópusambandsumræðuna hvað mest að Icesave-málið hafi komið upp á síðustu dögum. Það hefur skaðað þann málstað mest. Það er nú allt samhengið á milli ESB og Icesave þegar hagsmunaaðilarnir, þeir helstu, segja að það hefði betur aldrei komið til Icesave á sama tíma og ESB. Þetta er samhengið og ég hafna því að (Forseti hringir.) þingmenn Samfylkingarinnar hafi ekki goldið varhuga við Icesave-samningnum. Hann er vondur kostur, hugsanlega afarkostur (Forseti hringir.) en nokkuð sem við þurfum að taka. (Gripið fram í.)