aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Bara til upprifjunar. Samfylkingin hefur samþykkt Icesave-samninginn. Ríkisstjórnin samþykkti Icesave-samninginn. (Gripið fram í: Rétt.) Svo einfalt er það mál. (PHB: Samfylkingarráðherrarnir.) Bara svo því sé til haga haldið, (SER: Þið voruð búnir að hanna verri samning.) ég veit ekki hvernig málið er almennt hjá þingmönnum Samfylkingarinnar en ég læt ekki stjórnast af neinum hagsmunasamtökum. Það er svo augljóst að ríki sem er í viðskiptastríði, hörðum deilum, sækir ekki um aðild að ríkjabandalagi sem það er í stríði við á meðan það ástand stendur, ekki frekar en við hefðum sótt um aðild að Efnahagsbandalaginu meðan við áttum í þorskastríði og landhelgisdeilum (Gripið fram í: Við vorum í NATO þegar við vorum …) við Efnahagsbandalagið. Já, NATO. Við Íslendingar hótuðum reyndar að ganga út. (SER: Við fórum í NATO eftir að við vorum hertekin.) Það (Forseti hringir.) var 1949 — guð minn góður! Virðulegi forseti. Ég hef ekki tíma til að fara í söguskýringu (Forseti hringir.) á þessari mínútu en það væri gaman að fara yfir það. (Gripið fram í: Við vorum hertekin af NATO.) (Gripið fram í: Nei, nei … Við vorum stofnaðilar að NATO.) (Forseti hringir.) (Gripið fram í.)