Lánasjóður íslenskra námsmanna.
Frú forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við frumvarpið þar sem lagt er til að við efnismgr. a-liðar 1. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:
„Ábyrgðir geta m.a. verið ábyrgðaryfirlýsing fjármálastofnunar eða yfirlýsing ábyrgðarmanns um sjálfskuldarábyrgð á endurgreiðslu námsláns ásamt vöxtum og verðtryggingu þess allt að tiltekinni fjárhæð.“
Ástæða þessarar breytingartillögu er í raun tæknilegs eðlis því að við gerð breytingartillögu við frumvarpið frá menntamálanefnd féll síðasti málsl. 1. gr. frumvarpsins brott og nú er lagt til að hann verði settur inn aftur. 1. gr. hljóði því svo ef breytingartillagan verður samþykkt:
„Námsmenn, sem fá lán úr sjóðnum, skulu undirrita skuldabréf við lántöku, teljist þeir lánshæfir samkvæmt reglum stjórnar sjóðsins. Teljist námsmaður ekki lánshæfur getur hann lagt fram ábyrgðir sem sjóðurinn telur viðunandi.“ Búið að samþykkja þessa breytingu og við bætist þá þessi síðasti málsliður: „Ábyrgðir geta m.a. verið ábyrgðaryfirlýsing fjármálastofnunar eða yfirlýsing ábyrgðarmanns um sjálfskuldarábyrgð á endurgreiðslu námsláns ásamt vöxtum og verðtryggingu þess allt að tiltekinni fjárhæð.“