137. löggjafarþing — 46. fundur,  23. júlí 2009.

starfsmenn í hlutastörfum.

70. mál
[15:11]
Horfa

Frsm. fél.- og trn. (Lilja Mósesdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti félags- og tryggingamálanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 10/2004, um starfsmenn í hlutastörfum.

Frumvarpinu er ætlað að innleiða með fullnægjandi hætti tilskipun ráðsins 97/81/EB um rammasamning um hlutastörf. Þetta frumvarp er til komið vegna þess að Eftirlitsstofnun EFTA hefur talið þær undanþágur of víðtækar sem lögfestar voru með 3. og 4. mgr. 2. gr. laga um starfsmenn í hlutastörfum. Ákvæðin sem lagt er til að felld verði brott kveða á um undanþágu frá lögunum vegna starfsmanna ríkis og sveitarfélaga sem greitt fá tímavinnukaup og þeirra sem stunda störf á grundvelli grunnnáms, námssamninga eða ráðningarsambands sem er liður í þjálfunar-, aðlögunar- eða endurmenntunaráætlun. Þrátt fyrir breytinguna verður ríki og sveitarfélögum áfram heimilt að ráða til starfa fólk sem á grundvelli hlutlægra ástæðna fær greitt tímavinnukaup enda samræmist slík ráðning ákvæðum kjarasamninga og eftir atvikum öðrum lögum. Fái starfsmaður í hlutastarfi greitt tímavinnukaup skulu kjör hans borin saman við starfskjör og starfsskilyrði sambærilegs starfsmanns, þ.e. starfsmanns í fullu starfi sem fær greitt tímavinnukaup. Sé enginn sambærilegur starfsmaður í fullu starfi skal samanburðurinn gerður með vísan til viðeigandi kjarasamnings.

Nefndin hefur fjallað um málið en markmið breytinganna er að tryggja fólki í hlutastörfum á tímavinnukaupi þá vernd sem lögunum er ætlað að veita. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Lilja Mósesdóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Þuríður Backman, Guðbjartur Hannesson og Guðmundur Steingrímsson.

Fjarverandi voru hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Jón Gunnarsson og Ólína Þorvarðardóttir.