starfsmenn í hlutastörfum.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Vigdís Hauksdóttir spyr hvort það sé ekki sorglegt að vera að eyða tíma í að innleiða tilskipanir ESB. Ég verð nú að segja að nefndin eyddi ekki miklum tíma í þessa vinnu. Hún kallaði til sín hagsmunaaðila. Það tók hálfan dag eða tvo klukkutíma og síðan átti nefndin mjög gott samstarf um að semja þetta nefndarálit. Í nefndinni situr meðal annars fulltrúi Framsóknarflokksins sem tók þátt í að semja álitið. (Gripið fram í.)
Við eyddum sem sagt ekki miklum tíma í þetta. En þess má líka geta að við höfum tekið fyrir önnur mál. Við höfum meðal annars kallað á fund okkar hjálparsamtök til þess að gera okkur betur grein fyrir stöðu fólks sem misst hefur vinnuna og þarf að þiggja bætur og stuðning frá ýmsum samtökum og stofnunum.