breytingar á ýmsum lögum um óréttmæta viðskiptahætti.
Virðulegi forseti. Það mál sem við ræðum nú hefur þá sérstöðu ásamt, held ég, ýmsum málum sem rædd verða á eftir, að það er tekið út með ágætisfriði í viðskiptanefnd, en það virðist því miður orðin regla að þar eru mál afgreidd í miklum ágreiningi á milli meiri hluta og minni hluta. Er það mikill plagsiður og er sömuleiðis líka ávísun á mistök.
Það hefur verið farið ágætlega yfir efni málsins í þessari umræðu en þetta er eitt af þessum málum sem gætu verið hættuleg. Við skulum samt vona að svo sé ekki og alla vega er það ekki niðurstaða nefndarinnar heldur að hér sé aðeins um að ræða eitt fjölmörgum málum sem við afgreiðum sem er í rauninni búið að ganga frá að stærstum hluta frá Evrópusambandinu og okkur ber að taka upp.
Við höfum að vísu séð afskaplega slæm dæmi þess að við höfum ekki skoðað þessi mál nógu vel og er kannski stærsta einstaka málið sem við glímum við núna afleiðing þess. Það er Icesave-málið sem á rætur sínar til stórgallaðs innstæðutryggingarkerfis hjá Evrópusambandinu sem okkur bar að taka upp. Ég efast ekki um það að okkar dæmi, Ísland og Icesave-málið, verður notað í kennslubókum framtíðarinnar um það hvað er hægt að gera mikil mistök í þessu evrópska samstarfi sem við að stórum hluta tökum þátt í.
Hér tel ég að vísu að við höfum komið í veg fyrir, og ég tek það fram, virðulegi forseti, að það var gert í góðri sátt að við komum í veg fyrir að færa löggjafarvaldið í rauninni yfir til framkvæmdarvaldsins. Eins og frumvarpið leit út þegar nefndin fékk það eftir að hæstv. viðskiptaráðherra hafði talað fyrir því gátum við ekki komist að annarri niðurstöðu en þeirri að við svona breytingu á reglugerðum Evrópusambandsins þá mundi það sjálfkrafa hafa gildi sem reglugerðir og reglur á Íslandi og jafnvel án þess að löggjafinn hefði breytt lögunum. Það var niðurstaða nefndarinnar þegar við vorum búin að skoða þetta mál að þarna væri kominn sá háttur á, og allt í nafni tæknilegra úrlausna, að breyting á einum stað á vettvangi Evrópusambandsins mundi sjálfkrafa leiða af sér breytingar hjá okkur. Allt var þetta lagt upp með að hér væri um smámál og tæknileg úrlausnarefni að ræða. En það er bara þannig, virðulegi forseti, að þessi smámál og ég tala nú ekki um tæknileg úrlausnarefni verða oftar en ekki langstærstu málin.
Við skulum ekki gleyma því, virðulegi forseti, að þeir sem semja þessa hluti og fara af stað í þessa vegferð vinna annars staðar en hér á Íslandi miða allt við mið-evrópskan veruleika. Þarna eins og annars staðar, og er svo sem ekkert óeðlilegt við það, eru stóru ríkin í aðalhlutverki þegar menn leggja af stað með löggjöf á vettvangi Evrópusambandsins sem hefur það í för með sér, ef menn eru ekki vakandi hjá hinum ýmsu þjóðum, að það getur komið mjög illa niður á viðkomandi þjóð.
Ég nefndi hér Icesave og við getum rætt það betur annars staðar en eftir því sem ég best veit erum við líka, sökum þess að við höfum verið að taka upp, oft á tíðum án þess að skoða það eins og við ættum að gera, erum við að taka upp alls kyns lög og reglugerðir, tilskipanir frá Evrópusambandinu. Frægt er að ég held að það sé til ágæt löggjöf um skipaskurði á Íslandi og má færa rök fyrir því að það sé ekki það sem við þurfum kannski hvað mest á að halda. Við tókum t.d. upp samkeppni á raforkumarkaði, eins og það var kallað. Það var í anda innri markaðar eða í kjölfar innri markaðar Evrópusambandsins að við fórum í heljarinnar vinnu bæði við innleiðingu þeirra laga og í kjölfarið á lagabreytingunni þurftum við að skipta upp orkufyrirtækjum landsins og koma á einhvers konar samkeppni á raforkumarkaði.
Það eru nú orðin nokkur ár síðan og hver og einn getur dæmt um það, fundið á eigin skinni hvort hér sé um mikla samkeppni að ræða. Hún er kannski einhver. Það hefur að vísu verið boðið út, sérstaklega hjá stærri aðilum, en við hefðum örugglega getað komið því áleiðis án þess að fara í alla þessa vinnu og uppskiptingu á fyrirtækjum með þeim kostnaði sem því tilheyrir. Þau lög og það regluverk var svo sannarlega ekki samið með Ísland í huga, enda var svo sem ekkert leyndarmál að þetta var samið fyrir Evrópulöndin sem liggja þétt hvert að öðru. Þar er áratugahefð fyrir því, jafnvel lengri, að menn selji orku á milli landa og ekkert við það að athuga. En ég þarf ekki að útskýra fyrir þeim sem hér eru inni, virðulegi forseti, að við búum á eyju norður í Atlantshafi í allt öðru umhverfi. Við þurfum þess vegna að huga sérstaklega að því að þegar menn leggja af stað í vegferð, semja tilskipanir á vegum Evrópusambandsins, er ekki hugsað um þarfir Íslands sérstaklega.
Síðan getum við velt því fyrir okkur, af því að við erum hér á þessum fallega en frekar kalda júlídegi, hvort þetta sé nákvæmlega það við ættum að afgreiða núna. Það heyrir til undantekninga að við höldum sumarþing og þó að ég telji að sumarþing geti bæði verið gagnleg og skynsamleg verð ég að segja að þetta er ekki sú forgangsröð sem ég vildi sjá. Þótt ég sé varkár við að tala fyrir hönd þjóðarinnar, aðrir eru gjarnari á að gera það. — Það var einu sinni blað sem hét Þjóðviljinn. Það sem einkenndi blaðið kannski helst var að það birti eiginlega aldrei neitt sem var þjóðarvilji en var þess í stað fulltrúi lítils minnihlutahóps sem þótti mjög róttækur í skoðunum. Arftaki þess flokks, þáverandi Alþýðubandalagið, gott ef það var ekki Sósíalistaflokkurinn, er núna Vinstri grænir … (TÞH: Varst þú ekki dreifingaraðili fyrir blaðið?) Virðulegi forseti. Ég get alveg gengist við því að hafa gert ýmislegt af mér í gegnum tíðina. Úr því að hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson kallar og spyr hvort ég hafi ekki verið dreifingaraðili fyrir blaðið verð ég að gangast við því að ég bar það blað út. Ég bar það ekki aðeins út, ég var líka umboðsmaður þess og það eina sem ég hef mér til málsbóta er að þetta var ágætlega borgað og ég var ekkert sérstaklega gamall, ég man ekki hvort ég var 10 eða 12 ára. Það er afrek út af fyrir sig að græða á sósíalistunum svo ég hef það mér til ákveðinna málsbóta.
Hvað sem því líður held ég að það sé almennur vilji þjóðarinnar að við breytum um forgangsröð og við hefðum betur gert það strax. Sú ríkisstjórn sem nú situr og tók við 1. febrúar, þeir flokkar lögðu mikla áherslu á, og ég held að um það hafi verið samhljómur þá meðal allra, að það þyrfti að fara í björgunaraðgerðir fyrir heimilin og fyrirtækin. Það voru allir sammála um það. Menn voru í raun ekki alveg sammála um hvernig ætti að fara að því en þessir flokkar töldu að þeir gætu gert það hraðar og betur en sú ríkisstjórn sem þá sat. Því miður bendir þó ekkert til þess. Ef dagskrá þingsins í dag er skoðuð sést að menn hafa ekki náð þeim markmiðum sem þeir settu sér hvað þetta varðaði. Ég ætla ekki að lesa dagskrána upp núna, virðulegi forseti, enda er ég ekki með hana með mér hér í ræðustól en ég hvet þá aðila sem fylgjast með þingstörfum til að kynna sér hana. Það er hægt að sjá hana á vef þingsins og síðan getur hver og einn metið hvort þetta sé sú forgangsröðun sem menn vilja sjá.
Þeir pólitísku flokkar sem hér eru á þinginu, sérstaklega þeir sem nú eru í minni hluta, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og að ég tel Borgarahreyfingin sömuleiðis, hafa komið fram með hugmyndir og jafnvel áætlanir um heilsteyptar áætlanir. Við sjálfstæðismenn höfum til dæmis gert það varðandi efnahagsráðstafanir en því miður er ekki verið að vinna eftir því og ekki verið að ræða þá hluti sem nauðsynlegir eru fyrir fyrirtækin og einstaklingana. Maður finnur þess merki. Rétt áðan fékk ég tölvupóst frá smáatvinnurekanda sem býsnaðist yfir þessu. Hann býr til gjaldeyri úr litlu. Hann er með gallerí á Laugavegi og selur myndir til útlendinga. Hann er með í svokallaðri nýsköpun og fer einmitt yfir það hér að ekki sé hugað að þessum hlutum. Það sé ekki verið að setja hlutina í forgangsröð og þau úrræði sem menn hafi lagt upp með — þá er hann sérstaklega að vísa í reynsluráðningar eða starfsþjálfun — eigi alls ekki við hjá þessum litlu og meðalstóru nýsköpunarfyrirtækjum heldur sé í rauninni bara lagt upp eða teiknað fyrir stærri aðila sem hafi jafnvel ekki áhuga á að nýta sér þetta. Ég hef áhyggjur af þessu, virðulegi forseti. Ég hef áhyggjur af því að þess sé ekki langt að bíða, þegar frystingin á húsnæðislánunum hjá fólkinu fer að þiðna og sömuleiðis hefur því verið spáð, að í haust muni koma til samdráttar eða uppsagna hjá ýmsum fyrirtækjum. Ég hef heyrt frá mjög mörgum aðilum sem reka stór, lítil og meðalstór fyrirtæki að þeir hafa gríðarlegar áhyggjur af því að bankarnir hafi ekki verið starfandi og geti ekki sinnt sínu hlutverki.
Nú vonast ég til þess að það sem var kynnt fyrir nokkrum dögum muni verða til að það komist einhver skriður á þau mál en því miður er það ekki alveg ljóst. Við erum ekki komin með öll þau svör sem nauðsynleg eru í tengslum við þessi mál og ég vonast til að við nýtum þessa sumardaga til þess. Stærsta einstaka málið finnst mér vera að við eigum að sinna öðrum þáttum en því að innleiða tilskipanir eins og þessa í lögum um óréttmæta viðskiptahætti. Þetta er allt saman gott og blessað og það er mikilvægt að klára mál sem þessi en við eigum ekki að setja þau framarlega í forgangsröðina, alls ekki. Við förum því miður ekki vel með tíma okkar og við vinnum ekki eins og við ættum að gera fyrir umbjóðendur okkar á meðan dagskrá þingsins er eins og hún er í dag. Þetta vita allir. Ég efast ekki um að þingmenn meiri hlutans eru mér sammála hvað þetta varðar og ég vil hvetja þá til að beita áhrifum sínum til að breyta þessari forgangsröðun svo við förum að gera það sem núverandi ríkisstjórn lagði upp með og lofaði í orði, ræðu og greinaskrifum bæði fyrir og eftir kosningar.
Virðulegi forseti. Þetta var stutt innlegg í tengslum við þetta frumvarp. Ég vil þakka meiri hlutanum og formanni nefndarinnar fyrir að þetta var unnið í góðum friði um leið og ég vil hvetja formann nefndarinnar og meiri hlutann að gera slíkt hið sama í öðrum málum. Við höfum þegar á þessu þingi séð afleiðingar þess þegar menn vinna hlutina í miklum ófriði og á gríðarlegum hraða. Það var pínlegt að við þyrftum að breyta nokkurra vikna gömlum lögum vegna þess að menn flýttu sér of mikið. Heilir tveir dagar í þinginu voru teknir í að ganga frá breytingum á lögunum. Þrátt fyrir allar viðvaranir, ekki bara frá minni hlutanum heldur einnig umsagnaraðila, var sá háttur hafður á og lítill eða enginn friður var um hvernig að þeirri vinnu var staðið. Þess vegna þurftum við að breyta þeim lögum aftur fyrir nokkrum dögum. Ég vona að þetta verði endirinn á því en það er ekkert öruggt í þeim efnum. Því miður er ekkert öruggt hvað varðar hin ýmsu frumvörp sem við leggjum hér fram og höfum jafnvel klárað. Þá vísa ég sérstaklega í lögin um sparisjóðina, hugsanlegar breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem snúa fyrst og fremst að sparisjóðunum. Þar voru dæmi um að menn köstuðu til höndunum í besta falli. Það mál mun því miður örugglega dúkka aftur upp í sölum Alþingis. Sökum þess hve menn unnu það illa er skaðinn kannski skeður og það mun jafnvel kosta skattgreiðendur nokkra fjármuni að löggjafinn vandaði ekki vinnu sína betur en raun bar vitni.
Virðulegi forseti. Ég vonast samt sem áður til þess að þetta frumvarp sé nokkuð skaðlaust.